{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/ometanlegur-studningur-islands-jemen-ruanda-mali-og-jordaniu","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/ometanlegur-studningur-islands-jemen-ruanda-mali-og-jordaniu","uid":"ometanlegur-studningur-islands-jemen-ruanda-mali-og-jordaniu","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L2k","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2018-09-12T08:53:50+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTBhNWRlNWUtODJkNC00ZWY3LTk5ZGItNmQwMTE2OGU4NmZj_utn_studdi_bolusetningarherferd_gegn_maenusott_sem_nadi_til_milljona_barna.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C68%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTBhNWRlNWUtODJkNC00ZWY3LTk5ZGItNmQwMTE2OGU4NmZj_utn_studdi_bolusetningarherferd_gegn_maenusott_sem_nadi_til_milljona_barna.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=151%2C0%2C1233%2C864&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTBhNWRlNWUtODJkNC00ZWY3LTk5ZGItNmQwMTE2OGU4NmZj_utn_studdi_bolusetningarherferd_gegn_maenusott_sem_nadi_til_milljona_barna.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=497%2C0%2C540%2C864&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Árlega berast okkur ánægjulegar fréttir um hversu mikilvægur stuðningur frá Íslandi hefur verið fyrir börn um allan heim. Árið 2017 studdi íslenska ríkið UNICEF alþjóðlega með kjarnaframlagi upp á rúmlega milljón bandaríkjadala."},"page_title":{"text":"Ómetanlegur stuðningur Íslands við börn í Jemen, Rúanda, Malí og Jórdaníu"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"e36f9f49-eb65-5f2c-97d9-01c22fc8d155","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTBhNWRlNWUtODJkNC00ZWY3LTk5ZGItNmQwMTE2OGU4NmZj_utn_studdi_bolusetningarherferd_gegn_maenusott_sem_nadi_til_milljona_barna.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C864&w=1536&h=864","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"ac8e2de2-60af-5edd-8827-c5cfff4a61eb","primary":{"text":{"html":"

Árlega berast okkur ánægjulegar fréttir um hversu mikilvægur stuðningur frá Íslandi hefur verið fyrir börn um allan heim. Árið 2017 studdi íslenska ríkið UNICEF alþjóðlega með kjarnaframlagi upp á rúmlega milljón bandaríkjadala. Þökk sé þeim stuðningi náði UNICEF að styðja börn í Jemen, Rúanda, Malí og Jórdaníu maðal annars með bólusetningum gegn lífshættulegum sjúkdómum, bættri heilbrigðisþjónustu, vetrarfatnaði, endurbyggingu skóla og hreinu vatni.

Samstarf UNICEF og utanríkisráðuneytisins er mikilvægur liður í þróunarsamvinnu Íslands og íslensk stjórnvöld hafa veitt framlög til UNICEF alþjóðlega um árabil. Mikilvægur hluti framlaganna frá íslenska ríkisinu til UNICEF á heimsvísu eru svokölluð kjarnaframlög (e. regular resources) sem ekki eru eyrnamerkt ákveðnum verkefnum.  Kjarnaframlög gera UNICEF kleift að skipuleggja sig fram í tímann, bregðast strax við þegar neyðarástand brýst út og vera til staðar þar sem þörfin er mest hverju sinni.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"26d792ad-74bc-5be4-b669-c39510f45bf4","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NWZlMzEzZDAtYmNjMi00ZGQ4LTk0YTYtZTdlMGE1ZTIzYzc2_vetrarfatnadi_var_dreift_i_flottamannabudum_i_jordaniu.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1025&w=1536&h=1025","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"013148b0-5b93-5670-89b7-a7bf32330bf2","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"55a8aaaa-4630-5537-844e-fdd8a5f36e83","primary":{"text":{"html":"
Staða barna í Jemen í dag er skelfileg, og nánast hvert einasta barn í landinu þarf á lífsnauðsynlegri hjálp að halda. Til að bregðast við neyð barna í Jemen skiptu kjarnaframlög til UNICEF gríðarlegu máli. Íslenska ríkið hefur stutt dyggilega við neyðaraðgerðir UNICEF í landinu og gert samtökunum kleift að veita milljónum barna aðstoð við gífurlega erfiðar aðstæður.

Á síðasta ári bólusetti UNICEF 4,8 milljónir barna undir 5 ára í Jemen gegn mænusótt, og meira en 640 þúsund börn gegn mislingum, þökk sé slíkum framlögum. Báðir sjúkdómarnir geta verið lífshættulegir börnum. Auk þess studdi Ísland endurbyggingu vatns- og hreinlætiskerfa og hjálpaði til við að meðhöndla 226 þúsund börn við alvarlegri bráðavannæringu og tryggja 1,3 milljónum barna menntun, svo nokkuð sé nefnt.

Í Jórdaníu var yfir 100 þúsund börnum sem hafa flúið stíðið í Sýrlandi útvegaður hlýr fatnaður, skór og teppi til að verjast vetrarkuldanum í flóttamannabúðum. Leikskólar fyrir börn og nýsköpunarverkefni fyrir ungmenni nutu einnig stuðnings UNICEF og utanríkisráðuneytisins. „Ég kem núna á hverjum degi, og mun halda því áfram. Þetta hjálpar mér að sigrast á áskorunum, ég læri nýja hluti og kennslan hvetur mig áfram,“ segir Reem, 15 ára, sem kemur nú reglulega í nýsköpunarmiðstöð sem UNICEF hefur sett á laggirnar fyrir ungmenni í Jórdaníu.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"38202c23-46cc-5b56-983c-60d65a0f2f0b","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MGFlZWM3NDAtMTE4OS00ZDAzLTliMGYtYTdjYTlhZTQyOWI0_framlog_fra_islandi_bjorgudu_lifum_barna_i_mali.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"4ce72820-3d95-597d-89b8-95d1a1721d0d","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"fdda335c-1887-57f9-ba11-12743ba86b02","primary":{"text":{"html":"
Vanæring er ein helsta dánarorsök barna í Malí. Í Timbúktú, í norðurhluta landsins, þjást 15% barna vegna bráðavannæringar. Áframhaldandi átök og óstöðugleiki í landinu ógna lífi enn fleiri. Framlög frá Íslandi voru því mikilvæg til að bregðast við vannæringu meðal barna í landinu. Þau gerðu UNICEF kleift að meðhöndla yfir 6 þúsund börn við alvarlegri bráðavannæringu og útvega milljónum barna A-vítamín, bætiefni og aformunarlyf. Allt stuðlar þetta að bættri heilsu barna í landinu.

Samvinna UNICEF og utanríkisráðuneytisins gerði UNICEF einnig kleift að sinna þróunar- og hjálparstarfi á svæðum sem njóta lítillar athygli fjölmiðla og umheimsins almennt og að ná til allra berskjölduðustu barnanna. Í Rúanda vann UNICEF meðal annars að því að bæta gæði mæðra- og ungbarnaverndar til að draga úr tíðni ungbarnadauða. Samstarf við menntamálaráðuneyti landsins   lagði áherslu á jöfn tækifæri stúlkna og drengja til menntunar og auk þess aðstoðaði UNICEF ríkisstjórn Rúanda við að tryggja réttindi fatlaðra barna.

Framlög frá Íslandi gegna því ómissandi hlutverki í að vernda og bæta líf barna um allan heim, óháð því hvort þörf þeirra hafi vakið athygli alþjóðasamfélagsins. Þökk sé slíkum stuðningi getur UNICEF barist fyrir réttindum allra barna á heimsvísu og stuðlað að varanlegum umbótum í heiminum.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L2k"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}