{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/palestinsk-boern-fa-salraena-adstod","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/palestinsk-boern-fa-salraena-adstod","uid":"palestinsk-boern-fa-salraena-adstod","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N0C","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2006-10-05T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Á þessu ári hefur 91 barn týnt lífi sínu í átökum á Vesturbakkanum og Gaza, það er nærri helmingi fleiri en allt árið 2005. Ótti og ofbeldi er hluti af daglegu lífi barna á hernumdu svæðum Palestínu og þau þjást vegna aukins óróleika og kvíða."},"page_title":{"text":"Palestínsk börn fá sálræna aðstoð"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"6632c6ed-ae4c-559b-84e7-5be9a6884709","primary":{"text":{"html":"
Á þessu ári hefur 91 barn týnt lífi sínu í átökum á Vesturbakkanum og Gaza, það er nærri helmingi fleiri en allt árið 2005. Ótti og ofbeldi er hluti af daglegu lífi barna á hernumdu svæðum Palestínu og þau þjást vegna aukins óróleika og kvíða.

,,Börn upplifa reglulega hernaðarleg átök, niðurrif húsa og öryggiseftirlit á leiðinni í skólann," sagði fulltrúi barnaverndar UNICEF, Anne Grandjean. ,,Vegna þessa sjáum við greinileg merki kvíða hjá fjölda barna á þessum svæðum, s.s. ótti, átröskun, svefnröskun og erfiðleikar með einbeitingu."

,,Taka verður á öllum þessum merkjum eins fljótt og hægt er til að koma í veg fyrir langvarandi sálræn áhrif á barnið og þroska þess."

UNICEF og Mannúðaraðstoð framkvæmdanefndar Evrópusambandsins hefur komið á fót teymi félagsráðgjafa og sálfræðinga sem munu bregðast við þörfum palestínskra barna. Á hverjum mánuði ná þeir til 3000 barna og fjölskyldna þeirra og bjóða þeim stuðning og ráðgjöf í kjölfar ofbeldisverka. Ef börn þurfa á frekari hjálp að halda - 5 prósent þurfa hana - er þeim komið til viðeigandi aðila.

Að vernda æskuna
,,Mannúðaraðstoðin hefur átt í góðu samstarfi við UNICEF," sagði sérfræðingur framkvæmdaráðs Evrópusambandsins Herve Caiveau. ,,Saman getum við náð til bágstaddra barna á mjög skömmum tíma. Til dæmis getur UNICEF með okkar fjármagni veitt börnum sálrænan stuðning, eins og þeirra á Gaza."

Í tengslum við ráðgjöfina er haldin hátíð og strandarveisla í hverjum mánuði sem UNICEF og samstarfsaðilar skipuleggja. Þar fá þúsundir barna tækifæri til að leika sér áhyggjulaus í vernduðu umhverfi langt frá átökum.

,,Þessar hátíðir eru mikilvægur þáttur í að vernda æskuna," sagði yfirmaður UNICEF á Gaza og Vesturbakkanum, Dan Rohrmann. ,,Þetta er vettvangur þar sem börn geta verið börn, sem er sjaldgæft hér á Gaza svæðinu þar sem þau búa við ótta, ofbeldi og óöryggi."

Foreldrar og aðrir gæsluaðilar fá fræðslu í hvernig hægt sé að veita börnum vernd, takmarka kvíða þeirra á tímum átaka og hvernig þau geti sjálf tekist á við eigin ótta.

Þökk sé fjárstuðningi frá framkvæmdaráði Evrópusambandsins og UNICEF voru hjálpargögn og skipulaggning þegar tilbúin þegar nýleg átök á Gaza svæðinu hófust. Þessi stuðningur tryggir að palestínsk börn og fjölskyldur þeirra fái aðstoð eins fljótt og auðið er.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N0C"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}