{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/sannar-gjafir-aldrei-vinsaelli-0","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/sannar-gjafir-aldrei-vinsaelli-0","uid":"sannar-gjafir-aldrei-vinsaelli-0","type":"post","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NM9","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2013-12-19T15:45:46+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":""},"page_title":{"text":"Sannar gjafir aldrei vinsælli"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"eb14e025-03c8-55e8-968e-103da74cf9b0","primary":{"text":{"html":"
Síðan www.sannargjafir.is fékk andlitslyftingu á dögunum svo nú er leikur einn að kaupa sanna gjöf og gefa í nafni einhvers nákomins. Sannar gjafir hafa aldrei verið vinsælli og ótal lífsnauðsynlegar gjafir, allt frá ormalyfi til vatnsdæla, verið afgreiddar á síðustu dögum. Hjálpargögnin sjálf eru svo send á vettvang en viðtakandinn fær í hendur gjafabréf með fallegri kveðju.

Hraðfréttamennirnir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson voru ekki í vandræðum með að velja sér sanna gjöf hjá UNICEF fyrir jólin: Fótbolta og vítamínbætt jarðhnetumauk.

„Það skiptir gríðarlega miklu máli að börn geti leikið sér. Slíkt hjálpar þeim mikið,“ segir Benedikt um fótboltann. Skemmtilegur fótboltaleikur hjálpar börnum á flótta að gleyma stund og stað – og gefur þeim tækifæri til að vera börn. Hann minnkar auk þess kvíða og dregur úr streitu.

„Að vera svangur er vont og það á ekkert barn að deyja úr hungri. Þessi gjöf bjargar einfaldlega lífi barna,“ segir Fannar um vítamínbætta jarðhnetumaukið sem hann ætlar augljóslega ekki að borða sjálfur. Maukið hefur valdið byltingu í meðferð við vannæringu og verður nú sent til aðframkominna barna sem þurfa á því að halda.

Menntun lykillinn að bjartari framtíð

Námsgögn hafa notið sérlegra vinsælda hér á landi í ár og ótal manns hafa keypt stílabækur og blýanta sem sannar gjafir UNICEF. Þeim hefur í kjölfarið verið komið til barna í neyð. Námsgögnin sem keypt voru í fyrra fóru að mestu til barna á flótta frá Sýrlandi og fátækra barna í Níkaragúa.

„Ein af grundvallarstoðunum í starfi UNICEF er að tryggja að öll börn njóti góðrar menntunar. Menntun er öflugasta vopnið gegn fátækt og hungri, stuðlar að lækkun barnadauða, er mikilvæg til að ná jafnrétti kynjanna – og er lykillinn að bjartari framtíð okkur öllum til heilla. Þess vegna er gaman að sjá hversu vinsæl námsgögnin hafa verið hér á landi,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi.

Um er að ræða fjörutíu stílabækur og fjörutíu blýanta sem eru nauðsynlegur hluti af námi barna.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NM9"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}