{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/sannar-gjafir-fra-islandi-fara-til-barna-vida-um-heim","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/sannar-gjafir-fra-islandi-fara-til-barna-vida-um-heim","uid":"sannar-gjafir-fra-islandi-fara-til-barna-vida-um-heim","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L3S","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2018-12-12T10:25:31+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NmYzMzFkNGUtMzcyNy00MzlmLTg3NzktNmM5NWY4MWJhYjA0_mg_9011_copy.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C115%2C960%2C455&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NmYzMzFkNGUtMzcyNy00MzlmLTg3NzktNmM5NWY4MWJhYjA0_mg_9011_copy.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C6%2C960%2C673&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NmYzMzFkNGUtMzcyNy00MzlmLTg3NzktNmM5NWY4MWJhYjA0_mg_9011_copy.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=265%2C0%2C429%2C686&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Nú eins og síðastliðin jól eru Sannar gjafir UNICEF vinsælar í jólapakka landsmanna. Gjöfin er keypt í nafni þess sem þú vilt gleðja og UNICEF sér síðan til þess að koma hjálpargögnunum til barna þar sem þörfin er mest. Starfsfólk UNICEF á Íslandi keppist nú við að afgreiða þessar fallegu jólagjafir, og kveðjurnar á kortunum eru hverri fallegri."},"page_title":{"text":"Sannar gjafir frá Íslandi fara til barna víða um heim"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"20724c96-c1e4-57c0-a1ba-f11e8c77a6ad","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NGY0OTU1MzEtMjM3Mi00OGJmLWE5YTktYjYyZTVjNzYwNDBk_jardhnetumauk_teppi_og_vatnshreinsitoflur.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C5121%2C3092&w=5121&h=3092","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"8116aaf9-cbeb-5690-9b97-24016b79be1e","primary":{"text":{"html":"

Nú eins og síðastliðin jól eru Sannar gjafir UNICEF vinsælar í jólapakka landsmanna. Gjöfin er keypt í nafni þess sem þú vilt gleðja og UNICEF sér síðan til þess að koma hjálpargögnunum til barna þar sem þörfin er mest. Starfsfólk UNICEF á Íslandi keppist nú við að afgreiða þessar fallegu jólagjafir, og kveðjurnar á kortunum eru hverri fallegri.

Jólagjafir frá Íslandi bárust til barna um allan heim um síðustu jól. Í fyrra voru sem dæmi 70.550 skammtar af jarhnetumauki frá Íslandi sendir til barna meðal annars í Afganistan, Senegal og Bangladess. Ormalyf hjálpuðu börnum í Sýrlandi, Búrkína Fasó og Pakistan á meðan börn í Mjanmar, Sómalíu og Haítí fengu hreint drykkjarvatn þökk sé vatnshreinsitöflum sem voru keyptar í gegnum Sannar gjafir UNICEF. Þetta eru einungis örfá dæmi um gjafir sem ferðuðust til barna í neyð í fyrra og stefnir í að enn fleiri börn muni njóta góðs af Sönnum gjöfum frá Íslandi þetta árið.

Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir börn í neyð. Þær eru stórsniðugar jólagjafir, leynivinagjafir og jólakort fyrir vini og fjölskyldu en mikið úrval í öllum verðflokkum má finna á www.sannargafir.is. Íslensku jólasveinarnir hafa líka uppgötvað hversu sniðugar gjafirnar eru í litla skó úti í glugga.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"2e7ae2e1-004a-523a-ac88-2624df70f0cd","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MzUxZjhmMDgtMGMxNi00OTM2LTlkNzUtZWMwZWY1NDAyNTkw_20181113-_mg_8664.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C4864%2C3648&w=4864&h=3648","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"aa8cd11c-cb1a-5d4c-a7b5-bca47261de3c","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"077b686e-4346-5e29-afaa-6806003d4680","primary":{"text":{"html":"
Í fyrra var mjög vinsælt að gefa hlý teppi, en þeim er meðal annars dreift í flóttamannabúðum þar sem börnum er kalt. Auk þess seldust 65 vatnsdælur, en ein vatnsdæla getur útvegað heilu þorpi drykkjarvatn og gjörbreytt lífi barna og fjölskyldna á svæðinu.

„Allar gjafirnar eiga það sameiginlegt að bæta líf barna sem þurfa á hjálp okkar að halda. Það er því yndislegt að sjá hvað almenningur og fyrirtæki hér á Íslandi láta sig heilsu og réttindi barna varða og hversu margir kjósa að gefa Sannar gjafir um jólin,“ segir Ingibjörg Magnúsdóttir hjá UNICEF á Íslandi.

Það tekur enga stund að versla jólagjafirnar í vefverslun UNICEF, www.sannargjafir.is. Einnig er hægt að kíkja á skrifstofu UNICEF á Íslandi á Laugavegi 176 og velja gjafir á staðnum og fræðast um hvernig gjafirnar koma að góðum notum.

Hér má sjá nokkur dæmi að góðum jólagjöfum sem bæta líf barna:

Hlýr vetrarfatnaður\r
Veturinn er kominn víða um heim og í mörgum flóttamannabúðum. Fyrir fjölskyldur á flótta getur verið erfitt að útvega hlý föt fyrir öll börnin. Hlýr vetrarfatnaður er nauðsynlegur á þessum tíma og mun þeim vera dreift í flóttamannabúðum þar sem kalt er í tjöldum og gámum um nætur.

Vatnshreinsitöflur galdra fram drykkjarhæft vatn\r
Milljónir barna hafa ekki aðgengi að hreinu drykkjarvatni eins og við erum vön hér heima. Vatnshreinsitöflur eru sendar á svæði þar sem hreint vatn er af skornum skammti. Þessar bráðsniðugu töflur geta á örskotsstundu galdrað fram drykkjarhæft vatn úr óhreinu vatni og með því komið í veg fyrir útbreiðslu lífshættulegra smitsjúkdóma.

Jarðhnetumauk gerir kraftaverk fyrir vannærð börn\r
Vítamínbætt jarðhnetumauk gegnir lykilhlutverki á svæðum þar sem börn eru í lífshættu vegna vannæringar, meðal annars í Bangladess, Mið-Afríkulýðveldinu og Jemen. Jarðhnetumaukið inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, vítamín og steinefni sem börn þurfa og gerir kraftaverk fyrir vannærð börn. Það er tilbúið til neyslu beint úr pakkanum. Í flestum tilfellum þurfa börn einungis þrjá pakka á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L3S"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}