{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/stodvum-feluleikinn-auglysing-tilnefnd-til-ludursins-2019","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/stodvum-feluleikinn-auglysing-tilnefnd-til-ludursins-2019","uid":"stodvum-feluleikinn-auglysing-tilnefnd-til-ludursins-2019","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L3e","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2020-03-02T11:26:06+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YWZlZTg5NDEtZGFhOC00MTNkLTk1YjMtMjQxNzJhYzFmMmRl_ofbeldi_er_ein_helsta_ogn_sem_stedjar_ad_bornum_a_islandi.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C405%2C4200%2C1990&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YWZlZTg5NDEtZGFhOC00MTNkLTk1YjMtMjQxNzJhYzFmMmRl_ofbeldi_er_ein_helsta_ogn_sem_stedjar_ad_bornum_a_islandi.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=102%2C0%2C3997%2C2800&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YWZlZTg5NDEtZGFhOC00MTNkLTk1YjMtMjQxNzJhYzFmMmRl_ofbeldi_er_ein_helsta_ogn_sem_stedjar_ad_bornum_a_islandi.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=1222%2C0%2C1751%2C2800&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Auglýsing UNICEF á Íslandi fyrir herferð okkar Stöðvum feluleikinn hefur verið tilnefnd til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna 2019.Tilnefningin er í flokknum Almannaheill –TV/Herferð og erum við við einstaklega stolt af þessari viðurkenningu"},"page_title":{"text":"Auglýsingin fyrir Stöðvum feluleikinn tilnefnd til Lúðursins"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"440615d9-1a7d-51d8-80d8-fa0b10b05d01","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YWZlZTg5NDEtZGFhOC00MTNkLTk1YjMtMjQxNzJhYzFmMmRl_ofbeldi_er_ein_helsta_ogn_sem_stedjar_ad_bornum_a_islandi.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C4200%2C2800&w=4200&h=2800","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"84e2d133-0036-5aae-a050-bc97a659451b","primary":{"text":{"html":"

2. mars 2020 Auglýsing UNICEF á Íslandi fyrir herferð okkar Stöðvum feluleikinn hefur verið tilnefnd til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna 2019.Tilnefningin er í flokknum Almannaheill –TV/Herferð og erum við við einstaklega stolt af þessari viðurkenningu á vinnu okkar og þökkum við Pipar/TBWA sérstaklega fyrir að gera þetta svona vel.

Auglýsinguna má sjá með því að smella hér og þegar þú horfir á hana sérðu að hún er vel að tilnefningunni komin. Takk fyrir okkur!

Átakið Stöðvum feluleikinn fór af stað í fyrravor til að vekja athygli á ofbeldi gegn börnum á Íslandi í kjölfar birtingar UNICEF á Íslandi á nýjum tölum í málaflokknum. Þar kom fram að af rúmlega 80 þúsund börnum sem búa á Íslandi verði rúmlega 13 þúsund þeirra fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára afmælisdag sinn. Sum hver daglega. Í ljósi þessarar svörtu niðurstöðu kallaði UNICEF á Íslandi eftir vitundarvakningu og aðgerðum.

Í janúar síðastliðnum afhenti UNICEF á Íslandi svo félags- og barnamálaráðherra 11.430 undirskriftir úr ofbeldisvarnarátakinu í ráðherrabústaðnum Tjarnagötu. Ráðherrann tilkynnti við það tilefni um stofnun sérstakrar Miðstöðvar um ofbeldi gegn börnum. Markmið miðstöðvarinnar verður að halda utan um upplýsingar er varða ofbeldi gegn börnum og vera stjórnvöldum til ráðgjafar og leggja fram tillögur að mótun stefnu og aðgerða í þessum efnum og fylgja þeim eftir. Rekstur miðstöðvarinnar verður í höndum Barnaverndarstofu.

Auk Stöðvum feluleikinn eru tilnefndar auglýsingar frá Krabbameinsfélagi Íslands fyrir Mottumars, Á allra vörum fyrir Vaknaðu, Öryrkjabandalag Íslands fyrir Þér er ekki boðið og Íslandsdeild Amnesty International fyrir Þitt nafn bjargar lífum. Hér má sjá allar tilnefningar í öllum flokkum Lúðursins að þessu sinni.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L3e"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}