{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/thriggja-ara-lydveldisafmaeli-sudur-sudan-i-skugga-neydarastands","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/thriggja-ara-lydveldisafmaeli-sudur-sudan-i-skugga-neydarastands","uid":"thriggja-ara-lydveldisafmaeli-sudur-sudan-i-skugga-neydarastands","type":"post","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NND","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2014-07-09T20:34:11+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":""},"page_title":{"text":"Þriggja ára lýðveldisafmæli Suður Súdan í skugga neyðarástands"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"2af309fe-05fd-57b7-85fc-10b172c4a2e6","primary":{"text":{"html":"
Ástandið í yngsta ríkis heims, sem í dag, 9. júlí 2014, fagnar þriggja ára lýðveldisafmæli, fer versnandi með degi hverjum. Átök hafa hrakið 1,5 milljónir manna á flótta. Yfir 1,1 milljón manna, meira en helmingur þeirra börn, búa nú í neyðarskýlum innan Suður-Súdan þar sem lítið eða ekkert aðgengi er að neyðaraðstoð. Fjórar milljónir manna standa frammi fyrir neyðarástandi vegna fæðuóöryggis og varar UNICEF við því að 50.000 börn undir fimm ára aldri standi frammi fyrir dauðanum fái þau ekki meðferð við alvarlegri bráðavannæringu.

Umfang viðbragðsáætlana aukið

UNICEF og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna efla nú sameiginlegt átak sem felur í sér að ná til fólks í bráðri neyð í Suður-Súdan. Ná þarf til örvæntingarfullra íbúa afskekktra svæða landsins sem nú búa við gífurlega neyð. Ógnvænleg aukning hefur orðið á fjölda vannærðra barna og er neyðarástand af völdum hungurs yfirvofandi.

Viðamikilli viðbragðsáætlun hefur verið hrint af stað og er teymum hjálparstarfsfólks ásamt neyðargögnum flogið á afskekkt svæði svo hægt sé að veita fólki sem lítið eða ekkert aðgengi hefur haft að hjálp, bráðnauðsynlega neyðaraðstoð.

Fjöldi barna í bráðri hættu

Áætlað er að um 235.000 börn undir 5 ára aldri þurfi á meðferð við alvarlegri bráðavannæringu að halda á þessu ári. Að auki munu um 675.000 börn þurfa meðferð við bráðavannæringu. Vegna gríðarlega erfiðra aðstæðna hefur aðeins náðst til um 10 prósent þessara barna og varar UNICEF við því að 50.000 börn undir fimm ára aldri standi frammi fyrir dauðanum fái þau ekki meðferð við alvarlegri bráðavannæringu hið fyrsta.

„Margir sem hrökklast hafa frá heimilum sínum hafa þurft að ganga dögum saman án matar áður en þeir ná til bæja, líkt og höfuðstaðar Bentiu, í von um að fá aðstoð. Sum þeirra, sérstaklega börnin, koma svo alvarlega vannærð að það er ekkert hægt að gera til þess að bjarga þeim“ sagði Jonathan Veitch, talsmaður UNICEF í Suður-Súdan. „Við verðum að ná til íbúa þessara afskekktu svæða með helstu hjálpargögn og aðstoð til þess að hlífa þeim við þessu stórhættulega ferðalagi. Viðbragðsáætlunin gerir okkur kleift að veita þeim hjálp sem mest þurfa á henni að halda, sérstaklega börnunum sem eru í mestri hættu.”

Neyðarteymi send á afskekkt svæði

Þegar kom í ljós hversu hrikalegt ástand þeirra sem komu til Bentiu á flótta var, var sameiginlegt átak sett af stað til þess að finna þau svæði sem fólkið kom frá. Frásagnir fyrstu teymanna gefa til kynna ógnvænlega mikla vannæringu barna undir fimm ára aldri. Neyðarteymum er flogið á afskekkt svæði þar sem þau skrá fólk, útvega mat, gögn til hreinlætis og aðra neyðaraðstoð. Borin eru kennsl á börn sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar og grundvallarmenntun er veitt þar sem mögulegt er.

Með  þessari sameiginlegu viðbragðsáætlun hafa teymi verið send til 15 staða og hefur náðst til meira en 200.000 manns, þar á meðal 70.000 barna undir fimm ára aldri.  Auk þess hafa teymi Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna náð til 14 annarra staða og veitt fólki á þeim svæðum aðstoð. Þegar aðgengi næst að svæðum er oft möguleiki á samstarfi við fleiri aðila fyrir áframhaldandi hjálparstarf.

„Reynt hjálparstarfsfólk sem komið hefur til baka frá fjarlægum svæðum segja aðstæður verri en þau hafi nokkurn tíman séð.” segir Joyce Luma, Svæðisstjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna í Suður-Súdan. „Starf þessara teyma er bráðnauðsynlegt ef koma á í veg fyrir stórslys vegna hungurs. Við þurfum nauðsynlega á fjárhagslegum stuðningi og auknu samstarfi að halda til þess að auka umfang aðgerðanna, ná til fleiri og koma á laggirnar fastri viðveru á þessum afskekktu svæðum, ef við eigum að hafa möguleika á því að koma í veg fyrir yfirvofandi stórslys.“

Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi staddur í Suður-Súdan

Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi er nú staddur í Júba í Suður-Súdan þar sem hann sinnir neyðarstarfi. Hann deilir reynslu sinni af aðstæðum í landinu á persónulegu bloggi sínu: http://dansandibjorn.wordpress.com/.

UNICEF á Íslandi stendur fyrir neyðarsöfnun fyrir börn í Suður-Súdan

Neyðarsöfnun UNICEF fyrir börn í Suður-Súdan stendur nú yfir. Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 og gefa þannig 1.900 krónur. Fjöldi fólks og fyrirtækja hefur nú þegar lagt sitt af mörkum.

"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NND"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}