{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/thurrkar-ogna-boernum-i-kenia","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/thurrkar-ogna-boernum-i-kenia","uid":"thurrkar-ogna-boernum-i-kenia","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1Nzk","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2006-01-19T01:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Einn mesti þurrkur í Kenía í áraraðir ógnar nú lífi og heilsu þúsunda barna í norðurhluta landsins. Nýlegur regntími var stuttur í norður- og austurhluta landsins þar sem fólk lifir á hirðingjabúskap. Undir venjulegum kringumstæðum ætti búfénaður að vera við góða heilsu og nærast á nýsprottnu grasi, en í stað þess liggja hræ þeirra við vegina."},"page_title":{"text":"Þurrkar ógna börnum í Kenía"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"2d6afe3c-5b83-5927-b50e-316b842dce21","primary":{"text":{"html":"
Einn mesti þurrkur í Kenía í áraraðir ógnar nú lífi og heilsu þúsunda barna í norðurhluta landsins. Nýlegur regntími var stuttur í norður- og austurhluta landsins þar sem fólk lifir á hirðingjabúskap. Undir venjulegum kringumstæðum ætti búfénaður að vera við góða heilsu og nærast á nýsprottnu grasi, en í stað þess liggja hræ þeirra við vegina.

Yfirmaður UNICEF í Kenía, Heimo Laakonen, sagði að fjöldi vannærðra barna í héruðunum Wajir og Mandera gæti aukist, en ástandið er þegar mjög slæmt þar sem athuganir í október bentu til að um 30% barna væru vannærð.

„Því er spáð að þurrkarnir verði viðvarandi,“ sagði Laakkonen, „Að því gefnu mun ástandið aðeins versna, það er því nauðsynlegt að hjálparsamtök og ríkisstjórnin taki strax í taumana og standi vörð um líf barna og kvenna.“

Matvælaátælun Sameinuðu þjóðanna hefur þegar meira en tvöfaldað áætlaðar tölum um þá sem þurfa á mataraðstoð að halda eða 2,5 milljónir manna. Áætlað er að 560 þúsund manns á 7 svæðum muni þurfa neyðarbyrgðir af vatni.

Vannærð börn eru sérstaklega veik fyrir að fá sjúkdóma eins og malaríu, lungnabólgu og niðurgang. Sem betur fer fengu 80% barna á mestu þurrkasvæðunum A-vítamín í nýlegu bólusetningarátaki gegn mænusótt, en A-vítamínið styrkir ónæmiskerfið. En hins vegar hefur UNICEF verulegar áhyggjur af heilsu og líðan barna þar sem vatnsskortur er mikill á sumum svæðum, auk ónógrar heilsugæslu og á sumum svæðum hafa börn dottið úr skóla í miklum mæli. Hætta á átökum er einnig mikil. Fyrri átök yfir aðgang að vatni, gresjum og búfénaði hafa endað í fjöldamorðum þar sem börn eru ekki undanskilin.

UNICEF hefur beðið um 4 milljónir dollara til að veita 20 þúsund vannærðum börnum aðstoð. Nota á fjárhæðina til verkefna sem miða að því að tryggja að börn sæki skólann, fái hreint vatn og veita þeim nauðsynlega heilsugæslu og vernd.

UNICEF hefur þegar skráð vannærð börn í Wajir-héraði. Af 6400 börnum sem voru skoðuð, voru 1792 börn úrskurðuð vannærð og var þeim þegar veitt næring. Verið er að framkvæma svipað verkefni meðal barna og kvenna í Mandera-héraði.

UNICEF vinnur náið með ríkisstjórn Kenía til að tryggja að sá matur sem Matvælaáætlun SÞ veitir nái til þeirra barna sem mest þurfa á honum að halda. Bretar og Svíar hafa þegar heitið UNICEF aðstoð. Ríkisstjórn Kenía hefur einnig heitið auknum fjárframlögum til þurrkasvæðanna.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1Nzk"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}