{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/tolli-malar-100-hus-fyrir-unicef","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/tolli-malar-100-hus-fyrir-unicef","uid":"tolli-malar-100-hus-fyrir-unicef","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1Nyw","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2008-04-18T11:11:09+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"   Listamaðurinn Tolli hefur á undanförnum vikum málað eitthundrað „skólabyggingar“ fyrir UNICEF. Þessi glæsilega húsaþyrping verður til sýnis í Saltfélaginu 18.-25. apríl. Húsin verða þá gefin UNICEF-verndurum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem greiða mánaðarlega til UNICEF.      "},"page_title":{"text":"Tolli málar 100 hús fyrir UNICEF"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"9dbd3637-c1fd-54b4-808f-7af741140b7a","primary":{"text":{"html":"

Á síðasta ári var fjáröflunarverkefninu UNICEF-verndarar ýtt úr vör. Um er að ræða verkefni sem lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi leggja lið með mánaðarlegum fjárframlögum. Rennur styrkur fyrirtækjanna til uppbyggingar menntunar í hinum sárfátæku Vestur-Afríkuríkjum Síerra Leóne og Gíneu-Bissá.

Af þessu tilefni hefur listamaðurinn Tolli málað 100 „skólabyggingar“. Um er að ræða lítil pappahús og munu þau rúmlega 60 fyrirtæki sem þegar hafa gerst UNICEF-verndarar fá eitt hús hvert - til staðfestingar á stuðningi sínum. Húsin 40 sem eftir standa bíða svo nýrra verndara. Húsin eru táknræn að því leyti að fjárstyrkur UNICEF-verndara rennur m.a. til uppbyggingar skólahúsnæðis, auk þjálfunar kennara, kaupa á nauðsynlegum skólagögnum o.fl.

Sýning á húsum Tolla stendur yfir dagana 18.-25. apríl og er í samstarfi við Saltfélagið. Tolli hefur gefið UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, vinnu sína og efniskostnað.

Um UNICEF-verndara
Að bjóða litlum og meðalstórum fyrirtækjum að borga reglulega til góðgerðarmála með þessum hætti hefur ekki verið áður reynt á Íslandi. Hins vegar hefur þessi leið verið reynd á vegum UNICEF í Danmörku með mjög góðum árangri. Nú bætist UNICEF á Íslandi í hópinn og er það von samtakanna að íslensk fyrirtæki taki vel í þessa nýju fjáröflunarleið. Þegar eru rúmlega 60 fyrirtæki UNICEF-verndarar.

Styrkur UNICEF-verndara rennur til menntaverkefna UNICEF í tveimur af fátækustu löndum heims. Í Vestur-Afríku fer um 50% barna á mis við grundvallarmenntun eins og lestur og skrift og er hvergi í heiminum hærra hlutfall barna án menntunar. Íslensk fyrirtæki munu því leggja sitt af mörkum þar sem neyðin er stærst.

Með stuðningi UNICEF-verndara verður hægt að byggja skóla, þjálfa kennara og útvega skólabækur og ritföng, auk skólabekkja og krítartaflna. Það er staðreynd að menntun er besta leiðin til að rjúfa vítahring fátæktar.

"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1Nyw"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}