{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/unicef-bregst-fljott-vid-hamfoerunum-i-asiu","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/unicef-bregst-fljott-vid-hamfoerunum-i-asiu","uid":"unicef-bregst-fljott-vid-hamfoerunum-i-asiu","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OAb","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-01-05T01:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Neyðaraðstoð frá UNICEF hefur nú borist eða er komin vel á leið til þeirra svæða sem verst urðu úti eftir flóðbylgjurnar í síðustu viku. UNICEF brást strax við fréttunum af flóðbylgjunum í Asíu með sendingu 200.000 neyðarsjúkrapakka frá birgðastöðinni í Kaupmannahöfn. Nokkru síðar höfðu fimm flugvélafarmar með ýmsum neyðargögnum verið sendir."},"page_title":{"text":"UNICEF bregst fljótt við hamförunum í Asíu"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"95f2bafe-9e71-59cf-9970-9b2134dcd831","primary":{"text":{"html":"
Neyðaraðstoð frá UNICEF hefur nú borist eða er komin vel á leið til þeirra svæða sem verst urðu úti eftir flóðbylgjurnar í síðustu viku.
UNICEF brást strax við fréttunum af flóðbylgjunum í Asíu með sendingu 200.000 neyðarsjúkrapakka frá birgðastöðinni í Kaupmannahöfn. Nokkru síðar höfðu fimm flugvélafarmar með ýmsum neyðargögnum verið sendir. Um er að ræða meðal annars tjöld, ábreiður og vatnshreinsitöflur. Fleiri neyðarbirgðir eru væntanlegar, þar á meðal skólagögn sem gera börnum kleift að læra þó ekki séu hefðbundnar skólastofur fyrir hendi. Mikilvægt er að koma reglu á sem fyrst í lífi barna, eftir þær hörmungar sem þau hafa gengið í gegnum.

Yfirmaður neyðaraðstoðar UNICEF, Gerry Dyer, lýsti því yfir þann 3. janúar að stöðugri sendingu neyðargagna hafi verið komið á og verði haldið áfram.

Næstu birgðasendingar munu innihalda lyf til þess að sporna við og meðhöndla sjúkdóma eins og malaríu, kóleru, blóðkreppusótt og mislinga.

„Aðstoðin er á leiðinni,” segir Dyer. „Viðbrögð alþjóðasamfélagsins hafa verið framúrskarandi.”
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OAb"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}