{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/unicef-flygur-med-covid-prof-til-jemen","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/unicef-flygur-med-covid-prof-til-jemen","uid":"unicef-flygur-med-covid-prof-til-jemen","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L8A","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2020-06-18T14:54:38+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Fyrsta sending UNICEF með 10 þúsund kórónaveiruprófum lenti í Sana‘a í Jemen í dag. Með þessum hjálpargögnum verður hægt að stórauka prófanir í Jemen þar sem tilfellum COVID-19 fjölgar hratt. Annað eins magn af prófum er væntanlegt til Aden í Jemen á næstu dögum þökk sé UNICEF."},"page_title":{"text":"UNICEF flytur tíu þúsund kórónaveirupróf til Jemen"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"267d3b3d-e8ae-5eb8-9a35-7b75fe6008e9","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":null,"thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"a26f5344-c8a0-5284-a25e-9885f877aeda","primary":{"text":{"html":"
18. júní 2020  Fyrsta sending UNICEF með 10 þúsund kórónaveiruprófum lenti í Sana‘a í Jemen í dag. Með þessum hjálpargögnum verður hægt að stórauka prófanir í Jemen þar sem tilfellum COVID-19 fjölgar hratt. Annað eins magn af prófum er væntanlegt til Aden í Jemen á næstu dögum þökk sé UNICEF.

„Þessi sending gerir okkur kleift að skima fyrir COVID-19 um allt land, grípa tímanlega inn í ef um staðfest tilfelli er að ræða og bjarga þannig lífi fólks,“ segir Sara Beysolow Nyanti, fulltrúi UNICEF í Jemen. „UNICEF heldur áfram að flytja nauðsynleg hjálpargögn til Jemen og styðja við aðgerðir til að verja börn og samfélög þeirra gegn heimsfaraldrinum.“

Frá því að fyrsta staðfesta tilfelli COVID-19 greindist í Jemen þann 10. apríl síðastliðinn hefur UNICEF flutt rúmlega 33 þúsund öndunargrímur, 33 þúsund andlitsgrímur og 18 þúsund sloppa til landsins. Þessi hjálpargögn hafa nýst 400 framlínustarfsmönnum síðastliðna þrjá mánuði í hetjulegri baráttu þeirra gegn faraldrinum. En þörfin er mikil og ofangreint aðeins um fimm prósent af hjálpargögnum tengdum COVID-19 sem UNICEF þarf á að halda í Jemen.

Skelfilegar aðstæður barna í Jemen ættu að vera öllum kunnar. Staða fólks er slæm gagnvart heimsfaraldrinum þar sem ónæmi er almennt lítið, mikil vannæring meðal barna, skortur á aðgangi að grunnþjónustu á borð við bólusetningar og heilbrigðiskerfið í molum þar sem aðeins helmingur heilbrigðisstofnana er starfhæfur eftir áralöng átök.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"6b0f1550-b147-5abe-a55a-6d8e265abbe1","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":null,"thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"63f83891-776c-5dd4-8c8c-6579007765ff","primary":{"text":{"html":"
UNICEF kallar eftir auknum stuðningi við neyðaraðgerðir í Jemen. Samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að aðeins 10 prósent hafi safnast af þeim 53 milljónum dala sem áætlað er að þurfi vegna COVID-19 aðgerða í landinu.

UNICEF þarf þinn stuðning til að halda áfram að bjarga lífum barna og fjölskyldna þeirra með því að meðal annars:

Útvega 30 þúsund framlínustarfsmönnum í heilbrigðiskerfinu hjálpargögn og stuðning.

Koma upp öruggri aðstöðu til að skima eftir COVID-19 um allt land og tryggja samfellu í þjónustu þúsunda heilbrigðisstofnana.

Útvega hreint og öruggt vatn og hreinlætisvörur fyrir 900 þúsund manns í einangrunarmiðstöðvum og sóttkví.

„Gjafmildi okkar stuðningsfólks í gegnum tíðina hefur með sanni bjargað lífi milljóna barna. Í COVID-19 er þessi gjafmildi okkur mikilvægari en nokkru sinni, ekki aðeins til að glíma við afleiðingar kórónaveirunnar heldur einnig að halda áfram að vinna með börnum sem eru að alast upp í verstu mannúðarkrísu veraldar í landinu,“ segir Nyanti.

UNICEF á Íslandi stendur fyrir neyðarsöfnun fyrir börn í Jemen sem búa við vatnsskort, hungur og eru berskjölduð fyrir afleiðingum COVID-19 faraldursins. Sendu sms-ið JEMEN í númerið 1900 til að styrkja UNICEF um 1.900 krónur. \r
Þú getur líka styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi með frjálsu framlagi hér.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"1c5b6059-a23f-5505-807c-faf59e7ae4c0","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZDQyZTM4ZGItOWFkOS00MGNlLWI1MzEtMmM3ZDk1NzRmM2Zk_1280x720.png?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1280%2C720&w=1280&h=720","thumbnails":{"featuresize":null}}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L8A"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}