{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/unicef-hefur-althjodlega-herferd-gegn-alnaemi-barna","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/unicef-hefur-althjodlega-herferd-gegn-alnaemi-barna","uid":"unicef-hefur-althjodlega-herferd-gegn-alnaemi-barna","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OB5","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-10-25T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Alþjóðleg herferð UNICEF, undir slagorðinu “Sameinumst fyrir börn, sameinumst gegn alnæmi” er ætlað að vekja athygli heimsbyggðarinnar á þeirri staðreynd að málefni barna hafa verið undanskilin frá alþjóðlegum aðgerðaráætlunum gegn alnæmi."},"page_title":{"text":"UNICEF hefur alþjóðlega herferð gegn alnæmi barna"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"ba15cf94-65e2-5482-85d3-507f8de5fff4","primary":{"text":{"html":"
Alþjóðleg herferð UNICEF, undir slagorðinu “Sameinumst fyrir börn, sameinumst gegn alnæmi” er ætlað að vekja athygli heimsbyggðarinnar á þeirri staðreynd að málefni barna hafa verið undanskilin frá alþjóðlegum aðgerðaráætlunum gegn alnæmi.

Herferðin er sameiginlegt verkefni UNICEF og fjölmargra samstarfsaðila og er ætlað að setja af stað áætlun um hvernig beri að berjast gegn alnæmisfaraldrinum með sérstöku tilliti til barna.

„Börn eru í raun hin gleymda ásjóna alnæmis,” segir framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman. „Það er mikilvægt að við beinum sjónum okkar að þörfum barna.”

Hin fimm ára langa herferð mun hefjast formlega þriðjudaginn 25. október. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF, Peter Piot, framkvæmdastjóri UNAIDS og aðrar lykilmanneskjur í baráttunni gegn HIV/alnæmi, þar á meðal forsetafrú Rúanda Jeanette Kagame, forstjóri MTV Bill Roedy, Roger Moore, velgjörðarsendiherra UNICEF og ungmenni sem smituð eru af HIV/alnæmi munu stíga fram og styðja við upphaf herferðarinnar þann 25. október.

Beina þarf athygli að börnum í neyð
HIV/alnæmi ógnar barnæskunni og án aðgerða mun ástandið aðeins versna.

• Fleiri en 500.000 börn undir 15 ára aldri deyja á hverju ári vegna alnæmis.
• Fleiri en 15 milljónir barna um allan heim hafa misst annað eða báða foreldra sína vegna alnæmistengdra sjúkdóma.
• Fleiri en 2 milljónir barna eru smituð af HIV-veirunni.

Eftir meira en 20 ár er baráttan gegn alnæmi enn aðeins að örlitlu leiti helguð börnum. Minna en 5% HIV-smitaðra barna hafa aðgang að þeim lyfjum sem þau þarfnast, minna en 10% þeirra barna sem misst hafa foreldra sína og öryggisnet fjölskyldunnar fá félagslegan stuðning og minna en 10% þungaðra kvenna er boðin meðferð til þess að hindra smit til ófæddra barna sinna.

„Sameinumst fyrir börn, sameinumst gegn alnæmi”-herferðin hefur það að markmiði að sameina krafta allra þeirra sem berjast gegn alnæmi og virkja þá krafta til að mæta þörfum barna á fjórum lykilsviðum:

• Koma í veg fyrir HIV-smit frá móður til barns
• Útvega börnum þá lyfjameðferð sem þau þarfnast
• Koma í veg fyrir smit hjá ungu fólki
• Veita börnum hvers líf hefur verið snert af alnæmi stuðning og vernd.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"5900fbda-8b72-584a-a099-f4377c765f61","primary":{"text":{"html":"

"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OB5"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}