{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/unicef-hluir-ad-thoerfum-barna-a-jardskjalftasvaedunum-i-pakistan","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/unicef-hluir-ad-thoerfum-barna-a-jardskjalftasvaedunum-i-pakistan","uid":"unicef-hluir-ad-thoerfum-barna-a-jardskjalftasvaedunum-i-pakistan","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1N-5","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-11-09T01:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Enn er mikil þörf á aðstoð á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan og hefur UNICEF unnið hörðum höndum á síðustu vikum við að tryggja heilsu og öryggi barna sem eiga um sárt að binda vegna skjálftans."},"page_title":{"text":"UNICEF hlúir að þörfum barna á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"095e8b8f-d5c5-5940-b2f5-b9be814b489f","primary":{"text":{"html":"
Enn er mikil þörf á aðstoð á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan og hefur UNICEF unnið hörðum höndum á síðustu vikum við að tryggja heilsu og öryggi barna sem eiga um sárt að binda vegna skjálftans.

„Við stöndum nú fyrir viðamiklum neyðaraðgerðum og uppbyggingarstarfsemi sem miðar að því að tryggja lífsafkomu barna,” sagði Omar Abdi, fulltrúi UNICEF í Pakistan. „Þetta er einungis byrjunin og við erum ákveðin í að tryggja það að varnarlausustu fórnarlömb skjálftans komist heil í gegnum þessa erfiðleikatíma og fái þá umönnun og menntun sem þau verðskulda og þurfa.”

UNICEF vinnur að uppbyggingarstarfi Eyðilegging jarðskjálftans þann 8. október var gríðarleg og enn er mikið verk fyrir höndum við að endurbyggja samfélögin sem urðu hvað verst úti í hamförunum. UNICEF hefur unnið mikið starf síðan skjálftinn reið yfir og hér gefur að líta örfá dæmi um árangur þess starfs:

-UNICEF hefur tryggt að fleiri en 300.000 börn á jarðskjálftasvæðum Pakistan verði bólusett gegn mislingum, en bólusetningin er hluti af neyðaraðstoðarverkefni sem ætlað er að vernda yfir 4 milljónir manna gegn sjúkdómnum.
-UNICEF hefur útvegað meira en 70.000 skammta af stífkrampabóluefni til þess að berjast gegn þessum banvæna sjúkdómi sem tekið hefur líf 43 manna eftir jarðskjálftana.
-Í samvinnu við samstarfsaðila sína hefur UNICEF aðstoðað við að tryggja vatnsbirgðir og stórbætta hreinlætisaðstöðu allra aðalsjúkrahúsa jarðskjálftasvæðisins og neyðarbúða þeirra sem misst hafa heimili sín.
-UNICEF hefur veitt 1 milljón vatnshreinsitaflna.
-UNICEF hefur útvegað tjöld, kennsluefni, blýanta og stílabækur svo hægt sé að koma upp bráðabirgðaskólum fyrir börnin.
-UNICEF hefur dreift birgðum til sjúkrahúsa sem munu nægja til þess að mæta þörfum milljón sjúklinga yfir næstu þrjá mánuði.
-UNICEF hefur dreift 100.000 ábreiðum og 6.500 kössum af prótínkexi til barna sem þjást af matarskorti.
-UNICEF hefur útvegað dósamat, hlý föt, segldúka, sápu, lök og aðrar nauðsynjavörur í miklu magni.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1N-5"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}