{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/utanrikisraduneytid-og-unicef-bregdast-vid-neyd-barna","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/utanrikisraduneytid-og-unicef-bregdast-vid-neyd-barna","uid":"utanrikisraduneytid-og-unicef-bregdast-vid-neyd-barna","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L38","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2018-01-15T13:35:59+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YTdhZWY1MTAtY2IyYy00MjE3LWIyM2UtMTA2YTljZGUyNGYx_un050308.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C148%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YTdhZWY1MTAtY2IyYy00MjE3LWIyM2UtMTA2YTljZGUyNGYx_un050308.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YTdhZWY1MTAtY2IyYy00MjE3LWIyM2UtMTA2YTljZGUyNGYx_un050308.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Samstarf UNICEF og utanríkisráðuneytisins er mikilvægur liður í þróunarsamvinnu Íslands og íslensk stjórnvöld hafa veitt framlög til UNICEF alþjóðlega um árabil. Mikilvægur hluti framlaganna frá íslenska ríkisinu til UNICEF á heimsvísu eru svokölluð kjarnaframlög (e. regular resources) sem ekki eru eyrnamerkt ákveðnum verkefnum.  Árið 2016 studdi íslenska ríkið UNICEF alþjóðlega með kjarnaframlagi upp á tæplega milljón bandaríkjadala, og þökk sé þeim stuðningi náði UNICEF að sinna neyðaraðgerðum á svæðum sem náðu til milljóna barna."},"page_title":{"text":"Utanríkisráðuneytið og UNICEF bregðast við neyð barna"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"ce03e1d3-3ee2-5773-ab1d-ab657e9af651","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YTdhZWY1MTAtY2IyYy00MjE3LWIyM2UtMTA2YTljZGUyNGYx_un050308.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"33baab25-2cfa-597c-a419-ac0f1520c49c","primary":{"text":{"html":"

Samstarf UNICEF og utanríkisráðuneytisins er mikilvægur liður í þróunarsamvinnu Íslands og íslensk stjórnvöld hafa veitt framlög til UNICEF alþjóðlega um árabil. Mikilvægur hluti framlaganna frá íslenska ríkisinu til UNICEF á heimsvísu eru svokölluð kjarnaframlög (e. regular resources) sem ekki eru eyrnamerkt ákveðnum verkefnum.  Árið 2016 studdi íslenska ríkið UNICEF alþjóðlega með kjarnaframlagi upp á tæplega milljón bandaríkjadala, og þökk sé þeim stuðningi náði UNICEF að sinna neyðaraðgerðum á svæðum sem náðu til milljóna barna.

Óeyrnamerkt framlög gera UNICEF kleift að skipuleggja sig fram í tímann, bregðast strax við þegar neyðarástand brýst út og vera til staðar þar sem þörfin er mest hverju sinni. Þau gera UNICEF kleift að sinna þróunar- og hjálparstarfi á svæðum sem njóta lítillar athygli fjölmiðla og umheimsins almennt og að ná til allra berskjölduðustu barnanna. Jafnframt gera framlögin UNICEF kleift að takast á við orsakir og afleiðingar hamfara með því að styðja við innviði samfélaga og uppbyggingu sem hjálpa fjölskyldum og samfélögum að vera betur í stakk búin til að takast á við hamfarir sem kynnu að skella á í framtíðinni.

Framlög frá Íslandi gegna því ómissandi hlutverki í að vernda og bæta líf barna um allan heim, óháð því hvort þörf þeirra hafi vakið athygli alþjóðasamfélagsins. Þökk sé slíkum stuðningi getur UNICEF barist fyrir réttindum allra barna á heimsvísu og stuðlað að varanlegum umbótum í heiminum.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"bb6e748a-b0cd-517d-8ad2-6027fe892fe9","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/OWI4MTFlMTItZDk5YS00NWRiLTlhMGEtNDZiMjI0ZTc5NjRl_un036355.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C5472%2C3648&w=5472&h=3648","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"a5590c01-d394-5b00-b671-d35ccd816061","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"f539ea8e-7430-51da-808f-e128462e6dfb","primary":{"text":{"html":"
Árið 2016 nýttist stuðningur frá íslenska ríkinu á svæðum þar sem neyð barna er gífurleg:

Í Jemen var 1,7 milljónum barna hjálpað að halda áfram námi, meðal annars í bráðabirgðaskólum sem settir voru upp eftir að skólarnir þeirra voru gjöreyðilagðir í átökum. Auk þess tryggði UNICEF 165.000 manns aðgengi að hreinu drykkjarvatni í borginni Dhamar með því að setja upp vatnsdælur og útvegaði 10.200 manns í borginni Sana hreint vatn og hreinlætisvörur.

Eftir mikla þurrka ásamt miklum flóðum í Eþíópíu voru mörg börn í mjög viðkvæmri stöðu. UNICEF og samstarfsaðilar brugðust við neyðarástandinu og þökk sé framlögum m.a frá Íslandi náðist að tryggja 153.600 manns hreint drykkjarvatn og hreinlætisaðstöðu, 1,6 milljón grunnskólabörn byrjuðu aftur í skóla og 9,3 milljónir barna um allt landið fengu næringarþjónustu.  Auk þess setti UNICEF á laggirnar 13 hópa af heilsu- og næringarsérfræðingum sem ferðuðust á milli svæða með hæstu tíðni ungbarnadauða og sinntu ungbarnavernd og fræðslu fyrir verðandi mæður.

Skortur á uppskeru, hækkandi matvælaverð og stórfelldur fólksflótti vegna árása vígahreyfingarinnar Boko Haram skapaði algjört neyðarástand í Nígeríu á árinu, og mikill fjöldi barna var í lífshættu sökum vannæringar og smitsjúkdóma. Óeyrnamerkt framlög skiptu sköpum í að ná til barna sem þurftu nauðsynlega hjálp. Meðal annars voru 56 milljón börn bólusett gegn mænusótt og 25 milljón börn fengu alhliða heilsu- og næringarþjónustu.

Almenn framlög frá Íslandi nýttust einnig í baráttu UNICEF fyrir börn í Palestínu, Mósambík og Sýrlandi. Nú rétt fyrir jólin ákvað Utanríkisráðuneytið einnig að styðja neyðaraðgerðir UNICEF í Jemen um 30 milljónir.

Þessi stuðningur er ómetanlegur og gerir UNICEF kleift að vera til staðar fyrir börn og gæta að velferð þeirra um allan heim.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"9c8ef3da-d949-5b9d-b418-2eb4ef26e433","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":null,"thumbnails":{"featuresize":null}}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L38"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}