{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/var-sviptur-barnaeskunni-en-var-bjargad-af-unicef","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/var-sviptur-barnaeskunni-en-var-bjargad-af-unicef","uid":"var-sviptur-barnaeskunni-en-var-bjargad-af-unicef","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L5o","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2019-11-27T10:00:53+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/OWFhMTM1ZjEtNGYyOS00MDZmLTg3ZTEtOTQ5Mzg3MmU2YTFm_uni229262.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C148%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/OWFhMTM1ZjEtNGYyOS00MDZmLTg3ZTEtOTQ5Mzg3MmU2YTFm_uni229262.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/OWFhMTM1ZjEtNGYyOS00MDZmLTg3ZTEtOTQ5Mzg3MmU2YTFm_uni229262.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"„Í dag eru börn í Síerra Leóne að alast upp við áður óþekkta möguleika og tækifæri, en mörg þeirra eru þó enn að fara á mis við þau,“ segir Ishmael Beah, velgjörðarsendiherra UNICEF, sem lokið hefur heimsókn sinni til heimalandsins í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna."},"page_title":{"text":"Ishmael Beah var sviptur barnæskunni en bjargað af UNICEF - ■ Var barnungur hermaður í Síerra Leóne ■ Berst nú fyrir réttindum barna sem velgjörðarsendiherra eftir að hafa verið bjargað af UNICEF ■ Heimsótti heimalandið á 30 ára afmæli Barnasáttmálans og sat fund með forsetanum."},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"e8e19eed-0d65-50b7-ae6d-637a22432091","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/OWFhMTM1ZjEtNGYyOS00MDZmLTg3ZTEtOTQ5Mzg3MmU2YTFm_uni229262.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"7ba050ce-116a-5574-81db-360a885ee3d5","primary":{"text":{"html":"
27. nóvember 2019  „Í dag eru börn í Síerra Leóne að alast upp við áður óþekkta möguleika og tækifæri, en mörg þeirra eru þó enn að fara á mis við þau,“ segir Ishmael Beah, velgjörðarsendiherra UNICEF, sem lokið hefur heimsókn sinni til heimalandsins í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Ishmael var sem barn hnepptur í ánauð hermennsku í heimalandinu en eftir að honum var bjargað af UNICEF á tíunda áratug síðustu aldar hefur hann helgað líf sitt því að berjast fyrir réttindum barna sem sérlegur sendiherra UNICEF. Í ferð sinni nú heimsótti hann Bombali og Tonkolili-héruð í norðurhluta landsins þar sem hann hitti fyrir börn sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi, munaðarlaus börn og börn sem komist hafa í kast við lögin.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"9af42bc6-abc9-5a66-9d25-c20076a3bcad","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZDE1MmI0ZjctZWJlZC00Njk0LTg1ODUtMGEwYmFhZTNkODMy_uni229263.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"c1e69db6-d7a2-5aa1-a415-144335715bbe","primary":{"text":{"html":"
„Ég var sviptur mínum réttindum sem barn. Ég er stoltur af því að vinna með UNICEF að því að verja og berjast fyrir réttindum allra barna,“ segir Ishmael.

Í heimsókn sinni hitti Ishmael háskólanstúdínur sem sögðu honum frá þeim áskorunum sem stúlkur í Síerra Leóne standa frammi fyrir daglega. Kynbundið ofbeldi, áreitni og misnotkun sem geti haft þær afleiðingar að þær einangrast og verða af menntun og öðrum lífsins tækifærum.

Hann hitti einnig átta ára gamla stúlku sem var misnotuð kynferðislega af kennaranum sínum. Með aðstoð UNICEF er hún nú að fá sálfræði- og félagslegan stuðning og níðingurinn hefur verið fangelsaður.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"e4ec39bb-2dd7-5bfa-ab5d-3ca6fea1532e","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NGUzNTMyODktODY0Ny00OTliLTllNWEtNzQyNjFiODE3Y2Rh_uni229280.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"db1bbbe4-d167-5c76-9f7a-ba4b85deb095","primary":{"text":{"html":"
Mörg stór vandamál blasa við í Síerra Leóne. Í landinu er 19. hæsta hlutfall barnahjónabanda í heiminum þar sem 20 prósent stúlkna á aldrinum 15 til 19 ára eru nú þegar giftar. Ofbeldisfullar líkamlegar refsingar, barnaþrælkun, skortur á félagslegu stuðningsneti, sárafátækt og brottfall úr skóla eru sömuleiðis vandamál sem síerraleónskur almenningur glímir við.

En þrátt fyrir áhrif borgarastyrjaldar og ebólafaraldur á umliðnum árum þá hefur Síerra Leóne náð markverðum árangri í að bæta réttindi barna, aðstæður og möguleika engu að síður.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"e6a11ac6-107f-5ec5-bf9a-eebb75243088","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YzhlMzAzZmQtOWY5Ny00ZTJlLTk1NjYtNTlkYjY3MzBiYzZm_uni229569.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"b1cb1710-c526-572b-8628-1d39fd67454b","primary":{"text":{"html":"
Á tímabilinu 2010 og 2017 dróst hlutfall barnadauða, barna undir fimm ára aldri, saman um helming, aðgangur að hreinu drykkjarvatni hefur stórbatnað og með nýrri menntalöggjöf sem komið var á í fyrra hefur aðgengi barna að menntun og skóla stóraukist.

Ishmael nýtti heimsókn sína sömuleiðis til að setjast niður á fund með forseta landsins, Julius Maada Bio, þar sem hann lagði áherslu á mikilvægi þess að vernda börn, tryggja réttindi þeirra og bæta lífsgæði. Forsetinn tók undir með Ishmael og sagði stjórnvöld sameinuð í markmiðum sínum að bjarga hverju barni.

Heimsforeldrar taka virkan þátt í baráttu UNICEF um allan heim, meðal annars í baráttunni fyrir bættu lífi barna í Síerra Leóne. Á Íslandi eru yfir 27.000 heimsforeldrar sem hjálpa UNICEF í verkefnum sínum.

Hægt er að skrá sig sem heimsforeldri hér.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L5o"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}