{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/yfir-440-boern-njota-gods-af-styrk-baugs-i-gineu-bissa","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/yfir-440-boern-njota-gods-af-styrk-baugs-i-gineu-bissa","uid":"yfir-440-boern-njota-gods-af-styrk-baugs-i-gineu-bissa","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBT","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-03-03T01:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Baugur Group styrkir nú verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem snýr að umönnun ungabarna í Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá. Styrkurinn hljóðar upp á 20 milljónir króna og er það hæsti styrkur sem veittur hefur verið af fyrirtæki á Íslandi til eins þróunarverkefnis."},"page_title":{"text":"Yfir 440 börn njóta góðs af styrk Baugs í Gíneu-Bissá"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"b489c68a-b4f6-5a07-9b81-723be1f0a665","primary":{"text":{"html":"
Baugur Group styrkir nú verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem snýr að umönnun ungabarna í Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá. Styrkurinn hljóðar upp á 20 milljónir króna og er það hæsti styrkur sem veittur hefur verið af fyrirtæki á Íslandi til eins þróunarverkefnis.

Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs Group, Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland og Geir Gunnlaugsson, yfirlæknir á Miðstöð heilsuverndar barna, eru nýkomnir frá Gíneu-Bissá þar sem þeir skoðuðu verkefnið og kynntu sér land og þjóð.

Styrktarsamningurinn var undirritaður í mars 2004 og mun verkefnið standa í tvö ár. Nú þegar njóta yfir 440 börn góðs af verkefninu en áætlað er að aðstoða yfir 650 fjölskyldur í 65 þorpum í þremur héruðum landsins; Cacheu, Gabu og Tombali. Baugur styrkir allt verkefnið.

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, segir að megin tilgangur verkefnisins sé að draga úr hárri tíðni ungbarnadauða í landinu, „en þriðja hvert barn í Gíneu-Bissá nær ekki fimm ára aldri og er landið í tíunda sæti yfir háa tíðni ungbarnadauða. Til samanburðar er Ísland í 183. sæti,“ segir Stefán. „Verkefnið miðar einnig að því að aðstoða konur við barnsburð, enda eru líkurnar á því að kona deyi í barnsburði einn á móti þrettán í Gíneu-Bissá. Þessum hræðilegu staðreyndum vill UNICEF reyna að sporna við,“ segir Stefán Ingi.

Stefán segir að áhersla UNICEF sé að veita börnum, 0-8 ára, betri byrjun í lífinu með því að bæta heilsugæsluna í landinu, veita börnum viðeigandi næringu, félagslegan stuðning og vernda þau gegn misnotkun. „Hluti verkefnisins snýst um að samþætta aðgerðir á sviði heilbrigðismála, næringar og stuðningsþjónustu við fjölskyldur og börn, og gæta þess að tekið verði tillit til sérstöðu yngstu barnanna,“ segir Stefán Ingi Stefánsson.

Stefán segir að fjárstuðningur Baugs Group sé ómetanlegur fyrir svo lítið og fátækt land eins og Gíneu-Bissá. UNICEF starfar á öllum sviðum neyðar- og þróunaraðstoðar og treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga og fyrirtækja.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBT"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}