{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/yfir-fjorar-milljonir-barna-i-afganistan-gaetu-thurft-bradamedferd","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/yfir-fjorar-milljonir-barna-i-afganistan-gaetu-thurft-bradamedferd","uid":"yfir-fjorar-milljonir-barna-i-afganistan-gaetu-thurft-bradamedferd","type":"post","prismicId":"atDazREAACsA_6l9","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-10-15T14:03:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/Z_n1aLrOmdIKXwuR_UN0925584.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C128%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/Z_n1aLrOmdIKXwuR_UN0925584.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=30%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/Z_n1aLrOmdIKXwuR_UN0925584.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=475%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Búist er við að yfir ein milljón barna verði alvarlega vannærð."},"page_title":{"text":"Yfir 4 milljónir barna í Afganistan gætu þurft bráðameðferð vegna vannæringar á næsta ári"},"image_text":{"text":"Hin eins árs gamla Hamta kom vannærð með móður sinni í Shahi Foladi-næringarmiðstöðina í Bamyan í Afganistan. Þar fékk hún hins vegar viðeigandi næringarmeðferð, móðir hennar leiðsögn frá næringarsérfræðing og Hamta náði fullum bata. Vex hún nú og dafnar eins og vera ber. Mynd: UNICEF/UN0925584/Fazel "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"c0918392-f7a1-511a-baf5-f8efc1180006","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, og Action Against Hunger, sem fara fyrir næringarklasa mannúðarsamstarfsins í Afganistan, vara við því að bráðavannæring fari vaxandi í landinu. Gert er ráð fyrir að yfir fjórar milljónir barna þurfi meðferð vegna vannæringar á næsta ári, fleiri en nokkru sinni síðustu fimm árin.
Ný greining á alvarleika vannæringar, sem byggir á alþjóðlega flokkunarkerfinu IPC og var birt í dag, sýnir að ástandið muni versna enn frekar á næsta ári. Fjöldi héraða þar sem vannæring er á alvarlegu stigi hefur aukist úr sjö árið 2025 í tíu árið 2026 og er talið að þau verði 14 árið 2027, eða meira en þriðjungur héraða landsins. Spáin tekur mið af árstíðabundinni aukningu vannæringar og yfirvofandi fjárskorti sem gæti dregið úr aðgengi að fyrirbyggjandi næringarþjónustu og raskað lífsnauðsynlegri meðferð fyrir börn í mestri hættu.
Greiningin sýnir að alvarlegasta form bráðrar vannæringar eykst einnig hratt. Talið er að rúmlega 1 milljón barna verði alvarlega bráðavannærð árið 2027, sem er 16 prósenta aukning frá árinu 2026. Jafnframt er gert ráð fyrir að nærri þrjár milljónir barna verði í meðallagi bráðavannærð. Að baki þessum tölum eru börn sem eru í aukinni hættu á veikindum, seinkun á þroska og, í alvarlegustu tilvikunum, dauða ef þau fá ekki viðeigandi meðferð. Þá er búist við að nærri 1,3 milljónir barnshafandi kvenna og kvenna með börn á brjósti verði vannærðar á sama tímabili.
Ýmsir þættir ýta undir þessa versnandi neyð. Sífellt erfiðara reynist mörgum fjölskyldum að tryggja næringarríka fæðu og aðgang að hreinu vatni. Aðeins eitt af hverjum þremur börnum á aldrinum 6 til 24 mánaða fær nú þá samsetningu næringarríkrar fæðu sem nauðsynleg er fyrir heilbrigðan vöxt og þroska.
Endurtekin uppkoma bráðrar vatnskenndrar niðurgangspestar, mislinga og annarra sjúkdóma sem hægt er að fyrirbyggja eykur svo enn á hættuna. Jafnframt á nær helmingur heimila í Afganistan erfitt með að nálgast nægilegt magn af hreinu og öruggu vatni.
Truflanir á vöruflutningum yfir landamæri hafa einnig haft áhrif á framboð nauðsynlegra næringarvara. Það eykur álag á viðbragðsaðgerðir sem þegar eru undir miklu álagi og tefur aðgang barna að næringarefnum og meðferð sem getur bjargað lífi þeirra.
„Við vitum hvað virkar og vitum að snemmtækar aðgerðir bjarga mannslífum. Nú þarf stöðuga og fyrirsjáanlega fjármögnun til að tryggja að börn og fjölskyldur sem þurfa mest á aðstoð að halda hafi áfram aðgang að næringarþjónustu, heilbrigðisþjónustu og vatns-, salernis- og hreinlætisþjónustu. Ég hef séð styrk fjölskyldnanna og við verðum að mæta þeirri seiglu með því að greina vannæringu snemma og tryggja aðgengi að nauðsynlegum næringarvörum og meðferð,“ segir Tajudeen Oyewale, fulltrúi UNICEF í Afganistan.
Mesta bráðavannæringin mælist áfram í suðurhluta landsins, þar sem þörfin eykst hraðar en þjónustan nær að anna. Það gerir börn, barnshafandi konur og konur með börn á brjósti sífellt berskjaldaðri.
„Ég heimsótti nýlega Helmand í suðurhluta Afganistan, þar sem næringarþjónustan er undir gríðarlegu álagi. Meðferð við alvarlegri vannæringu bjargar lífi barna og er áfram nauðsynleg, en við eigum ekki að bíða þar til barn berst fyrir lífi sínu áður en við grípum til aðgerða. Raunverulegur árangur felst í því hversu mörg börn við getum komið í veg fyrir að verði alvarlega vannærð. Það er leiðin að heilbrigðari framtíð barna í Afganistan,“ segir Cobi Rietveld, landsstjóri Action Against Hunger í Afganistan.
Næringarklasinn varar við því að án tafarlausrar og viðvarandi fjármögnunar muni bráðavannæring að öllum líkindum versna enn frekar. Brýnt er að tryggja fjármagn til að viðhalda lífsnauðsynlegri fæðu-, næringar- og heilbrigðisþjónustu, ásamt aðgengi að hreinu vatni, hreinlætisaðstöðu og stuðningi við lífsviðurværi fjölskyldna. Þannig má bæði mæta brýnum þörfum og ráðast að rótum vannæringar.
Fjármögnun getur komið í veg fyrir að ástandið versni enn frekar, tryggt áframhaldandi nauðsynlega þjónustu og dregið úr þeim mannlega og fjárhagslega kostnaði sem fylgir því að bregðast við þegar ástandið hefur versnað enn frekar.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"atDazREAACsA_6l9"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}