{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/yfirlysing-unicef-a-islandi-arettar-mikilvaegi-thess-ad-gerdar-seu-urbaetur-a-utlendingaloegum-og","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/yfirlysing-unicef-a-islandi-arettar-mikilvaegi-thess-ad-gerdar-seu-urbaetur-a-utlendingaloegum-og","uid":"yfirlysing-unicef-a-islandi-arettar-mikilvaegi-thess-ad-gerdar-seu-urbaetur-a-utlendingaloegum-og","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L6S","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2017-09-18T13:11:53+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NDE5OGNlNmItNjRmNy00MjhhLTkyYmItZjcxZDE1MWNlZTZl_un0121214.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C511%2C5293%2C2507&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NDE5OGNlNmItNjRmNy00MjhhLTkyYmItZjcxZDE1MWNlZTZl_un0121214.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=121%2C0%2C5037%2C3529&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NDE5OGNlNmItNjRmNy00MjhhLTkyYmItZjcxZDE1MWNlZTZl_un0121214.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=1540%2C0%2C2207%2C3529&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Eitt af yfirlýstum markmiðum nýrra útlendingalaga (nr. 80/2016), sem unnin voru af þverpólitískri nefnd þingmanna og tóku gildi 1. janúar 2017, var að uppfylla með skýrari hætti mannréttindi barna sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi og samræma löggjöf alþjóðlegum skuldbindingum, m.a. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem lögfestur var hér á landi 2013."},"page_title":{"text":"Yfirlýsing: UNICEF á Íslandi áréttar mikilvægi þess að gerðar séu úrbætur á útlendingalögum og framfylgd þeirra fyrir kosningar til að tryggja mannréttindi barna"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"a487b436-3567-5e1f-8f50-48d6a38f6a5d","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NDE5OGNlNmItNjRmNy00MjhhLTkyYmItZjcxZDE1MWNlZTZl_un0121214.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C5293%2C3529&w=5293&h=3529","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"70dc998d-cff5-5258-a967-5768c2d52b00","primary":{"text":{"html":"

UNICEF á Íslandi hvetur Alþingi til að sameinast um breytingar á útlendingalögum fyrir kosningar, til að tryggja réttindi allra barna sem leita hingað eftir alþjóðlegri vernd. Nauðsynlegt er að ráðast í tafarlausar úrbætur á yfirstandandi þingi og tryggja að þeim ákvæðum laganna er varðar réttindi og hagsmuni barna sé framfylgt með fullnægjandi hætti.

Eitt af yfirlýstum markmiðum nýrra útlendingalaga (nr. 80/2016), sem unnin voru af þverpólitískri nefnd þingmanna og tóku gildi 1. janúar 2017, var að uppfylla með skýrari hætti mannréttindi barna sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi og samræma löggjöf alþjóðlegum skuldbindingum, m.a. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem lögfestur var hér á landi 2013. Síðustu mánuði hefur hins vegar komið í ljós að talsverðir annmarkar eru á framfylgd laganna og nauðsynlegt er að skýra betur inntak þeirra með tilliti til mannréttinda og hagsmuna barna sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.

Mál tveggja ungra stúlkna sem synjað hefur verið um vernd og vísa á úr landi hafa hlotið mikla umfjöllun í fjölmiðlum síðustu mánuði. Þó svo að sérstaklega hafi verið rætt opinberlega um mál einstaka barna má ekki gleymast að fleiri börn hér á landi eru í sömu sporum. Tryggja þarf að öll börn njóti mannúðar og mannréttinda.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"0abb5225-eaa3-5737-8eaf-4e08d6061384","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"92236875-b12c-5b89-a9df-dab3e21b5e32","primary":{"text":{"html":"

Gera breytingar á útlendingalögum til að skýra betur réttindi og hagsmuni barna

Setja á laggirnar þverpólitíska nefnd til að fylgjast með og bæta framfylgd útlendingalaga

Auka stuðning við stofnanir sem koma að framfylgd laganna

Yfirlýsing þessi helst í hendur við alþjóðlegt ákall UNICEF þar sem kallað er eftir aðgerðum til að tryggja öryggi allra barna á flótta og á vergangi.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L6S"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}