02. október 2026

Yfirlýsing UNICEF um áhrif nýlegra átaka á börn í Sómalíu

„Börn verða ávallt að njóta verndar.“

Sandra Lattouf, fulltrúi UNICEF í Sómalíu:

„UNICEF hefur miklar áhyggjur af fregnum um að börn hafi látið lífið og særst í nýlegum átökum í Baidoa í Suðvesturríki Sómalíu. Þá berast einnig fregnir af skemmdum á heilbrigðisstofnun.

„Börn bera enn á ný þyngstu byrðar ofbeldisins. Óöryggi stofnar lífi barna í hættu og takmarkar aðgang þeirra að heilbrigðisþjónustu og annarri nauðsynlegri þjónustu, á sama tíma og margar fjölskyldur glíma þegar við heimilisleysi, matarskort og mikla vannæringu meðal barna.

„UNICEF skorar á stríðandi fylkingar að vernda börn gegn skaða, tryggja vernd skóla og heilbrigðisstofnana og tryggja að mannúðaraðstoð komist örugglega og hindrunarlaust til þeirra sem þurfa á henni að halda.

„Öll börn eiga rétt á því að vera örugg, njóta verndar gegn ofbeldi og hafa aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa til að lifa af og þroskast.

„Börn verða ávallt að njóta verndar.“

Fleiri
fréttir

06. október 2026

Yfir 1.900 börn munaðarlaus eða aðskilin fjölskyldum sínum vegna ebólufaraldurs í Kongó
Lesa meira

03. október 2026

Yfirlýsing UNICEF um áhrif harðnandi átaka í norðurhluta Eþíópíu á börn
Lesa meira

02. október 2026

Börn drepin og slösuð í drónaárás á athvarf fyrir flóttafólk í Súdan
Lesa meira
Fara í fréttasafn