Smelltu hér til að styrkja UNICEF
Smelltu hér til að styrkja UNICEF

Leiktu þér að því að gera heiminn betri

Þegar þú skráir þig í ævintýraferðalagið færðu mánaðarlega sendan skemmtilegan glaðning frá Múmín og UNICEF. Múmínleikhús, karaktera, sögur og þroskandi leiki sem verða að frábærri skjálausri skemmtun fyrir skapandi fjölskyldur.

Með því að skrá þig gerist þú Heimsforeldri UNICEF og fjárfestir þannig í framtíð, velferð og réttindum barna um allan heim.

Það er því leikur einn að gera heiminn að betri stað með UNICEF og Múmín.

Ert þú nú þegar Heimsforeldri og vilt upplifa ævintýri í Múmíndal? Hafðu samband á unicef@unicef.is eða í síma 5526300

Algengar spurningar um Múmínverkefnið

Þú færð eina sendingu í mánuði á meðan þú ferðast um Múmíndalinn með okkur.

Fyrsta sendingin kemur til þín í mánuðinum eftir að þú skráir þig.

Markmið verkefnisins hjá okkur og Múmín eru tvíþætt, en þau eru að hvetja börn til að leika sér, nota ímyndunaraflið og sköpunarkraftinn, samhliða því að skapa gæðatíma utan skjás fyrir alla fjölskylduna. 

Þar að auki að fjölga Heimsforeldrum UNICEF og tryggja þannig börnum útum allan heim aðgengi að menntun.

Árið 2022 hófum við samstarf við Múmín. Samstarfið byggði á því að hanna áskriftarleið fyrir Heimsforeldra UNICEF sem myndi bæði efla lestrarskilning og áhuga barna á lestri og samhliða því að tryggja börnum útum allan heim aðgengi að menntun.

 Verkefnið unnum við í samstarfið við þverfaglega listahópinn Þykjó þar sem Sigga Sunna og Ninna voru í forsvari og ásamt Ævari Þór Benediktssyni, sendiherra UNICEF á Íslandi.

En hvernig eykur verkefni áhuga barna á lestri?

Leikur er mikilvægur miðill fyrir lesþroska barna. Á meðan börn leika sér og eiga samskipti fá þau aukið innsæi um það hvernig tungumál virkar. Þau æfa sig í fjölmörgum blæbrigðum í þykjustuleik og öðlast innsýn í merkingu ritaðs máls. Þau læra líka að setja sig í spor annarra og mynda samkennd með öðrum.

Hvernig tryggir það börnum útum allan heim aðgengi að menntun?

Með því að skrá þig í ferðarlagið um Múmíndal skráir þú þig sem Heimsforeldri UNICEF. 

Heimsforeldrar eru þeir einstaklingar sem fjárfesta mánaðarlega í framtíð barna útum allan heim. Framlög Heimsforeldra tryggja viðveru okkar í 190 löndum, þau tryggja það að við getum brugðist strax við þegar neyðarástand brýst út og unnið samhliða því að langtíma- og varanlegum árangri fyrir börn.

Aðgengi að menntun eru réttindi barna og við stöndum vörð um þau réttindi með því að vera á staðnum. Mánaðarleg framlög Heimsforeldra tryggja þetta.

12 mánaða ævintýrið um Múmíndal hefst á því að Heimsforeldrar fá sent til sín múmínálfa leikhús. Við bætum svo við í hverjum mánuði karakterum, söguspjöldum, leikjaspjöldum og aukahlutum í umhverfið fyrir leikhúsið. Þannig getur þú ásamt barni þínu skapað sannkallaðan ævintýraheim. Markmið okkar er að hvetja börn til að leika sér, nota ímyndunaraflið og sköpunarkraftinn, samhliða því að skapa gæðatíma utan skjás fyrir fjölskylduna. 

Við fengum með okkur í lið frábæra samstarfsaðila til að vinna og hanna verkefnið.

Ævar Þór Benediktsson rithöfundur, leikari og sendiherra UNICEF á Íslandi, tók þátt í hugmyndavinnu, uppsetningu og verkefnum á leikjaspjöldum. Ævar lánaði okkur líka rödd sína fyrir auglýsingu verkefnisins.

Þverfaglegi hópurinn Þykjó tók upplifunarhönnun verkefnisins í fangið og mætti segja að þær hafi búið í Múmínheimi á meðan á verkefninu stóð. Þykjó er hópur hönnuða með fjölbreyttan bakgrunn sem samnýta ólíka sérþekkingu í teymisvinnu sinni.

Við fengum líka mjög dýrmæta ráðgjöf og aðstoð frá nemendum í Ísaksskóla sem tóku leikjasmiðjur með okkur og gáfu okkur sérfræðiálit þeirra á leikhúsinu og fylgihlutum. Einnig voru haldnar fjölskyldusmiðjur þar sem fjölskyldur komu saman og tóku prufusnúning á leikhúsinu. Endurmat þessara hópa skipti gífurlega miklu máli í ferlinu. Því hvernig er í raun hægt að hanna og þróa áskriftarleið fyrir börn án þáttöku þeirra í ferlinu?

Lágmarksupphæð til að skrá sig eru 4500 krónur. Það eru hins vegar engar takmarkanir fyrir hámarksupphæð á framlagi Heimsforeldra.

Ferðalag þitt með múmínfjölskyldunni stendur yfir í 12 mánuði. Sem Heimsforeldri tilheyrir þú einnig annarri og stærri fjölskyldu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Með mánaðarlegu framlagi þínu styrkir þú ekki eitt barn, heldur hjálpar börnum um allan heim í gegnum starf UNICEF í yfir 190 löndum. Heimsforeldrar mynda öryggisnet fyrir öll börn og gera heiminn að betri stað, til frambúðar.  

Sem Heimsforeldri vinnur þú gegn barnaþrælkun og barnahjónaböndum, tryggir börnum menntun, hreint vatn, næringu, húsaskjól, neyðaraðstoð og sálrænan stuðning svo fátt eitt sé nefnt.   Þegar ferðarlaginu um Múmíndal lýkur förum við í annað ferðarlag sem fer fram í rafrænu formu og kíkjum við í öllum heimshornum til að sjá í hvað framlög þín sem Heimsforeldra fara.

Þetta er fjölskylduferðalag sem er svo sannarlega þess virði að fara í.  

Eftir að 12 mánaðarferðarlaginu um Múmíndal lýkur, þá tekur við annað ferðarlag þar sem við höldum áfram að skoða áhrif þín á líf barna útúm allan heim sem Heimsforeldri.

Lágmarks binditími áskriftar eru 6 mánuðir frá nýskráningu. Það er gert til að halda öllum framleiðslukostnaði í lágmarki.

Heimsforeldrar styðja mikilvæg störf UNICEF í þágu velferðar og réttinda allra barna. 

Sem Heimsforeldri gætir þú að velferð barna um heim allan. Þú hjálpar börnum sem eiga undir högg að sækja, börnum á öllum aldri, í ólíkum aðstæðum.  

Í dag gæti gjöf þín sem Heimsforeldri hjálpað ungri stúlku að ganga í skóla í fyrsta sinn. Á morgun gæti barn fengið meðferð við alvarlegri vannæringu eða losnað undan barnaþrælkun. 

Sem Heimsforeldri styður þú ekki við eitt barn í einu samfélagi heldur hjálpar börnum um allan heim þar sem þörfin er mest hverju sinni. 

UNICEF er leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum. Við sinnum langtímauppbyggingu og neyðaraðstoð og erum á vettvangi í yfir 190 löndum. Vertu með! 

Allur stuðningur við starf UNICEF er mikilvægur. Við fögnum því hverju einasta framlagi. Það sem gerir mánaðarlegar gjafir Heimsforeldra hins vegar einstakar er að þær gera okkur kleift að skipuleggja starfið til lengri tíma og stuðla þannig að varanlegum breytingum til frambúðar. Auk þess er stuðningur Heimsforeldra ekki eyrnamerktur tilteknu svæði eða börnum, heldur fer framlagið þangað sem þörfin er mest hverju sinni.  

UNICEF er til staðar í yfir 190 löndum, við erum með sérfræðinga á vettvangi sem meta það hver þörfin er hverju sinni og hvaða verkefni þurfa að vera í forgangi. Kjarnarframlög Heimsforeldra eru sveigjanlegt fjármagn sem gefur okkar fólki á vettvangi rými til að meta þörf barna og aðstæður hverju sinni og setja fjármagnið þar sem þörfin er mest.  

Þar sem UNICEF er á vettvangi gera kjarnaframlög okkur kleift að bregðast við um leið og neyðarástand verður. Við erum undirbúin þeim og fáum fjármagn frá kjarnaframlögum Heimsforeldra til að bregðast samstundis við, því við vitum að hver einasta sekúnda skiptir máli.  

Kjarnaframlög Heimsforeldra gera okkur því kleift að bregðast samstundis við þegar neyðarástand brýst út, vera áfram til staðar fyrir börn eftir að kastljós fjölmiðla er farið annað og sinna hjálparstarfi á svæðum sem njóta engrar fjölmiðlaathygli. Það er afar dýrmætt að geta stýrt framlögum þangað sem neyðin er mest, óháð kastljósi fjölmiðla. 

Mánaðarlega framlag þitt styður við vinnu UNCEF í yfir 190 löndum. UNICEF  vinnur hörðum höndum að því að bæta heiminn fyrir öll börn svo að öll börn fái jöfn tækifæri til að lifa og dafna. Framlag þitt getur farið í þá langtímavinnu að tryggja öllum börn lífsnauðsynlegar bólusetningar, aðgengi að menntun, aðgengi að drykkjarhæfu vatni, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, standa vörð um grunnréttindi barna svo eitthvað sé nefnt.  

Þar sem UNICEF er á vettvangi í yfir 190 löndum, vinnum við náið með fjölskyldum, samfélögum og ríkisstjórnum til að ná sem mestum árangri fyrir öll börn.  

Þú verður hluti af langtímavinna UNICEF til að gera heiminn betri fyrir öll börn.  

Hér getur þú séð árangurinn af því að vera Heimsforeldri ef þú skráir þig fyrir 4500 kr. Á einu ári mun framlag þig t.d. geta

  • Hreinsað yfir 656 þúsund lítra af vatni svo það sé drykkjarhæft. Til samanburðar þá tekur hefbundin sundlaug um 40 þúsund lítra af vatni, 656 þúsund lítrar samsvara því vatnsmagni sem kemst fyrir í um 16 slíkum sundlaugum.
  • Bólusett 1.157 börn gegn mislingum 
  • Bjargað lífi 23 barna sem þjást af alvarlegri vannæringu með 3 vikna næringarmeðferð þar sem þau fá 3 skammta af vítamínbættu jarðhnetumauki daglega.  Um 80% barna sem fá meðferðina ná sér að fullu.

Hér getur þú séð árangurinn af því að vera Heimsforeldri ef þú skráir þig fyrir 6500 kr. Á einu ári mun framlag þig t.d. geta

  • Hreinsað yfir 950 þúsund lítra af vatni svo það sé drykkjarhæft. Til samanburðar þá tekur hefðbundið baðkar um 150 lítra af vatni, 950 þúsund lítrar samsvara því að fylla yfir 6 þúsund baðkör!
  • Bólusett 1.671 börn gegn mislingum 
  • Bjargað lífi 33 barna sem þjást af alvarlegri vannæringu með 3 vikna næringarmeðferð þar sem þau fá 3 skammta af vítamínbættu jarðhnetumauki daglega.  Um 80% barna sem fá meðferðina ná sér að fullu.

Hér getur þú séð árangurinn af því að vera Heimsforeldri ef þú skráir þig fyrir 8500 kr. Á einu ári mun framlag þig t.d. geta

  • Hreinsað yfir 1.2 milljón lítra af vatni svo það sé drykkjarhæft. Til samanburðar þá elska fílar að fara í bað, vatnsmagnið sem er yfirleitt notað í fílabaði er um 250 lítrar, 1.2 milljón lítrar geta baðað 5 þúsund fíla.
  • Bólusett 1.671 börn gegn mislingum 
  • Bjargað lífi 33 barna sem þjást af alvarlegri vannæringu með 3 vikna næringarmeðferð þar sem þau fá 3 skammta af vítamínbættu jarðhnetumauki daglega.  Um 80% barna sem fá meðferðina ná sér að fullu.

Takk fyrir að styðja vinnu UNICEF út um allan heim. 

Við reynum að halda öllum aukalegum bankakostnaði í lágmarki svo sem mest af framlaginu skili sér áleiðis á réttan stað. Til að sleppa við færslugjöld er hægt að skrá kredit/debetkort í staðinn.

Í upphafi ferðarlagsins um Múmíndal færð þú sent múmín leikhús til að setja saman, karaktera í leikhúsið, bakgrunna,  kort af Múmíndal þar sem sagan okkar gerist og límmiða til að merkja inn á kortið þá staði sem þú hefur heimsótt. Við bætum svo við í hverjum mánuði karakterum, söguspjöldum, leikjaspjöldum og aukahlutum í umhverfið fyrir leikhúsið. Þannig getur þú ásamt barni þínu skapað sannkallaðan ævintýraheim. 

Viðtakandi greiðir sendingarkostnað af fyrstu póstsendingu í Múmínverkefninu sem inniheldur Múmínleikhúsið.

Hægt er að sækja Múmínleikhúsið á skrifstofu UNICEF á Strandgötu 75, Hafnarfirði en mikilvægt er að hafa samband í gegnum tölvupóstfangið unicef@unicef.is eða í síma 552 6300 og láta vita ef viðtakandi vill sækja. 

Ef pakkinn þinn hefur ekki borist er best að hafa samband við okkur á unicef@unicef.is eða í síma 5526300.

Í skráningarpóstinum sem þú færð eftir að þú skráir þig sem Heimsforeldri, getur þú skráð nafnið á þeim aðila sem á að fá póstsendingar. Ef um annað heimilisfang er að ræða en þitt eigið þá er best að hafa samband við okkur á unicef@unicef.is eða í síma 5526300.

Ef þú ert nú þegar Heimsforeldri og vilt upplifa ævintýri í Múmíndal þá getur þú haft samband á unicef@unicef.is eða í síma 5526300.

Hafðu samband við okkur á unicef@unicef.is eða í síma 5526300, hlökkum til að heyra í þér :)

Múmínferðarlagið er ætlað fyrir börn eldri en 3 ára. Markhópurinn er helst miðaður við börn frá 4 ára - 11 ára.

Hafðu samband við okkur

Sendu okkur línu

Hringdu í okkur

Kíktu í heimsókn

Strandgata 75, 220 Hafnarfjörður

Opið mán - fim 09:00 - 16:00 | Fös 09:00 - 13:00 | Lokað í hádeginu