05. júní 2024

UNICEF á Íslandi og UN Global Compact undirrita viljayfirlýsingu um samstarf 

Ætla að hvetja fyrirtæki til að tileinka sér ábyrga viðskiptahætti og styðja við sjálfbærniverkefni UNICEF

Birna Þórarinsdóttir og Auður Hrefna Guðmundsdóttir að loknum fundi sínum í dag.

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Auður Hrefna Guðmundsdóttir, svæðisstjóri UN Global Compact, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að efla samstarf sín í milli um að hvetja íslensk fyrirtæki til að tileinka sér ábyrga viðskiptahætti og styðja við sjálfbærniverkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 

Viljayfirlýsingin felur í sér að UNICEF á Íslandi tekur að sér að kynna UN Global Compact, hnattrænt samkomulag Sameinuðu þjóðanna um siðferði og ábyrgð í viðskiptum, fyrir samstarfsaðilum og hvetja fyrirtæki til að gerast aðilar að UN Global Compact. 

UN Global Compact mun hvetja meðlimi, sem teljast vera lítil og meðalstór fyrirtæki, til að taka þátt í Loftslagsloforði UNICEF á Íslandi sem og að vekja athygli stærri samstarfsfyrirtækja á möguleikum þátttöku í verkefnum UNICEF. 

Enn fremur felur viljayfirlýsingin sér að báðir aðilar styðji hvorn annan með því að deila upplýsingum, viðburðum, tengiliðum og þekkingu er varðar sjálfbærni og ábyrgð fyrirtækja.

Þá munu félögin taka höndum saman um að vekja athygli á mikilvægi sjálfbærni og hvetja til aukinna þátttöku íslenskra fyrirtækja í verkefnum henni tengdri. 

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF: 
„Heimsmarkmið um sjálfbæra þróun eru vegvísir heimsins um betri framtíð fyrir okkur öll. Sautjánda og síðasta heimsmarkmiðið fjallar um samvinnu um markmiðin. Mögulega er þetta mikilvægasta markmiðið því það er ómögulegt að ná árangri öðruvísi en í víðtæku og öflugu samstarfi. Landsnefnd UNICEF á Íslandi og UN Global Compact á Íslandi ætla að sýna samvinnu í verki í víðtæku samtali okkar við atvinnulífið. Við vonum að við fáum góða hlustun og metnaðarfulla samstarfsaðila í því sameiginlega verkefni okkar allra að ná heimsmarkmiðunum.“ 

Fleiri
fréttir

08. júlí 2024

Yfirlýsing UNICEF vegna árása í Úkraínu
Lesa meira

03. júlí 2024

10 ár af neyð: Gleymdu börnin í Mið-Afríkulýðveldinu
Lesa meira

01. júlí 2024

Átta leikskólar fengu viðurkenningu sem Réttindaskólar UNICEF 
Lesa meira
Fara í fréttasafn