28. mars 2022

Ekki missa af Heimsins mikilvægasta kvöldi!

Söfnunar- og skemmtiþáttur UNICEF í beinni útsendingu á RÚV laugardagskvöldið 2.apríl klukkan 19:45

Í þættinum „Heimsins mikilvægasta kvöld“ nær Heimsforeldraátak UNICEF á Íslandi „Heimsins bestu foreldrar“ hámarki með glæsilegum söfnunar- og skemmtiþætti í beinni útsendingu á RÚV, laugardagskvöldið 2. apríl klukkan 19:45. Þátturinn verður í senn fræðandi og á að vekja gleði og von þar sem hátt í 100 leikarar, dansarar, grínarar og tónlistarfólk taka þátt í að skapa ógleymanlega kvöldstund fyrir alla fjölskylduna. 

Skemmtun sem skiptir máli 

Heimsins mikilvægasta kvöld er þáttur sem enginn má missa af. Þar verður fjallað um stríðið í Úkraínu og neyðaraðgerðir UNICEF á svæðinu. Eins verður sýnt frá margvíslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónaveirunnar á líf barna, meðal annars í Malaví, Síerra Leóne, Indónesíu, Bangladess, Sýrlandi og Jemen. Markmið þáttarins er að fjölga enn í hópi Heimsforeldra á Íslandi sem styðja starf UNICEF með mánaðarlegum framlögum.  

Auk hjartnæmra innslaga frá UNICEF á vettvangi verður þátturinn sneisafullur af skemmtiatriðum frá þjóðþekktu listafólki. Þetta er allt frá stjörnuprýddum grínsketsum Kanarí-hópsins, þar sem meðal annars Annie Mist, Jón Gnarr, Steindi og Bassi Maraj eiga stórleik, til glæsilegra tónlistaratriða með Páli Óskari og Diddú, Lay Low, Birgittu Haukdal, Daníel Ágústi og Sigríði Thorlacius.  

Kynnar kvöldsins eru Einar Örn Jónsson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir sem munu stýra kvöldinu úr myndveri RÚV og Björg Magnúsdóttir og Guðmundur Pálsson sem munu standa vaktina í símaveri Vodafone þar sem mikið verður um óvæntar uppákomur. Dagskárgerð er í höndum Þórs Freyssonar.  

Stuðningur heimsins bestu foreldra hefur aldrei verið mikilvægari

Mánaðarleg framlög Heimsforeldra tryggja getu UNICEF til að vera til staðar þar sem neyðin er og sveigjanleika til að bregðast skjótt við þegar skálmöld skellur á, rétt eins og kom á daginn í Úkraínu fyrir mánuði síðan.   

Í átakinu Heimsins bestu foreldrar sem hófst í síðustu viku munu framlög nýrra Heimsforeldra næstu þrjá mánuði renna beint til neyðarstarfs UNICEF vegna Úkraínu. Sem Heimsforeldri hjálpar þú UNICEF t.d. að: 

  • Vera til staðar fyrir börn og fjölskyldur á flótta frá Úkraínu og flytja hjálpargögn, sjúkragögn, lyf og nauðsynjar á vettvang átakanna. 
  • Tryggja réttindi og velferð barna sem orðið hafa verst úti vegna heimsfaraldurs COVID-19 um allan heim. 
  • Tryggja vannærðum börnum í Jemen og um allan heim lífsbjörg. 
  • Aðstoða barnungar stúlkur að losa sig úr viðjum barnahjónabanda. 
  • Vernda börn um allan heim fyrir ánauð barnaþrælkunar, hermennsku og hvers kyns ofbeldi. 
  • Tryggja börnum um allan heim aðgengi að hreinu vatni, nauðsynlegum bólusetningum, lyfjum, heilbrigðisþjónustu og næringu. 

Ísland á heimsmet í fjölda Heimsforeldra (miðað við höfðatölu) og minnum við því þann mikla fjölda núverandi Heimsforeldra einnig á að alltaf er hægt að hafa samband við skrifstofu UNICEF á Íslandi og hækka framlag sitt.  
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er með starfsemi í yfir 190 löndum og er á vettvangi margra stríða. Í öllum þessum verkefnum, nær og fjær, skiptir hvert framlag máli. Komdu í hóp heimsins bestu foreldra í dag.  

Heimsins mikilvægasta kvöld er þáttur sem enginn má missa af. UNICEF á Íslandi þakkar öllum þeim fjölmörgu sem gáfu vinnu sína og lögðu samtökunum lið til að láta hann verða að veruleika. Styrktaraðilar átaksins eru Vodafone, Lindex, og Kvika banki. Einnig fær UNICEF á Íslandi styrk frá Utanríkisráðuneytinu til að halda úti öflugu kynningar- og fræðslustarfi sem er hluti af þættinum.  Auglýsingastofan TVIST vann markaðsátak herferðarinnar og útlit þáttarins. 

Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn