þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.
Þú ert hér:
Stefán Ingi Stefánsson leiddi undirbúning að stofnun landsnefndar UNICEF á Íslandi árið 2003 og hefur verið framkvæmdastjóri frá formlegri stofnun hennar í mars 2004. Stefán er fæddur í Noregi árið 1976 en uppalinn í Hlíðunum. Hann stundaði nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands og starfaði á Landsspítala Háskólasjúkrahúsi og Bata-sjúkraþjálfun áður en hann hóf störf hjá UNICEF Ísland. Stefán hefur hlaupið 9 maraþon og þjálfar hlaupahóp fyrir Reykjavíkurmaraþon í hjáverkum. Stefán er kallaður „loftbelgurinn“ á skrifstofunni sökum þess hve hann sér alla hluti ofan frá og í réttu samhengi. Hann fær líka svo mikið af hugmyndum að það er erfitt að halda honum á jörðinni.
Bergsteinn Jónsson hefur unnið hjá UNICEF síðan í október 2006 og sér um verkefni tengd fyrirtækjafjáröflun, skólum og ungmennum. Á meðan Stefán er í fríi er hann líka starfandi framkvæmdastjóri. Bergsteinn er menntaður mannfræðingur frá Háskóla Íslands og er næstum því með mastersgráðu í alþjóðlegum þróunarfræðum og samskiptum menningarheima við Hróarskelduháskóla. Beggi er með tvo spékoppa sem þykir afar flott í Asíu. Af nokkuð augljósum ástæðum er hann kallaður „hugsjónamassi“ af samstarfsfólki sínu. Beggi á einn son og stjúpdóttur, en þau eru bæði afburðagreind börn.
Bryndís Lúðvíksdóttir kom til liðs við UNICEF Ísland sumarið 2008. Hún starfaði áður hjá Kaupþingi í fjölda ára og m.a. sem yfirmaður lánadeildar bankans. Nú starfar hún sem fjáröflunarfulltrúi hjá UNICEF á Íslandi og sér m.a. um samskipti við banka og að framlög nærri 17 þúsund heimsforeldra skili sér með öruggum hætti til Barnahjálparinnar. Hún ber einnig þann mikilvæga titil ,,tengiliður heimsforeldra“. Bryndís á mann á mótorhjóli og þrjú börn, þar af einn sjúklega frægan son.
Dröfn Guðmundsdóttir hefur starfað sem fjármálastjóri UNICEF á Íslandi frá því í ágúst 2006. Hún er menntaður meinatæknir frá Kaupmannahöfn. Áður en hún hóf störf hjá UNICEF starfaði hún sem fjármálastjóri í eigin fyrirtæki. Hún átti lengi sæti í stjórn Hringsins og var gjaldkeri félagsins. Dröfn er matgæðingur, mikil laxveiðikona og elskar Ítalíu. Sökum gífurlegrar skipulagshæfni og vandvirkni í starfi er Dröfn kölluð „pressan“ á skrifstofunni. Maðurinn hennar Drafnar slær iðulega í gegn meðal starfsfólks UNICEF, sérstaklega þegar hann kemur með eitthvað úr bakaríinu.
Eva Hrönn Steindórsdóttir var ráðin sem verkefnastjóri í fjáröflun samstarfsfyrirtækja og í söludeild í lok árs 2010. Á stuttum tíma hefur hún hrifsað til sín titlana Cellar-Dog og Cool-Master undan öðrum starfsmönnum án þess að svitna. Nýlega fékk hún viðurnefnið Seiðkonan á kontórnum, enda magnar hún upp krafta og seið hvar sem hún kemur. Eva er með mastergráðu í viðskiptafræði og hefur m.a. starfað hjá UNIFEM og Klikk Productions. Einnig starfaði hún sem gyðja háloftanna til margra ára hjá Icelandair. Eva er hin sannkallaða súperkona því auk þess að starfa hjá UNICEF er hún formaður Umsjónarfélags einhverfra og hefur komist inn á lista yfir 25 spretthörðustu konur Íslands
Flóki Guðmundsson hefur starfað sem fjáröflunarfulltrúi hjá UNICEF frá 1. apríl 2007. Áður en leið hans lá til UNICEF starfaði hann m.a. sem blaðamaður og kennari í afdalasveitum Norðurlands en eyddi tíma sínum ekki síst við námsbækurnar. Flóki er nefnilega lærður maður; er með tvöfalt BA próf, í spænsku og heimspeki, auk þess að státa af meistaraprófi í heimspeki frá St Andrews í Skotlandi. Hugmynd Flóka að velheppnuðu „fríi“ er að hjóla 900 kílómetra í fjallgarði. Honum finnst gaman að syngja og á það til að leyfa samstarfsfólki sínu að njóta hæfileika sinna á því sviði ófarvarandis. Flóki er nefndur „forkurinn“ af samstarfsfólki sínu fyrir ótrúlegan dugnað og eljusemi í starfi. Flóki á eina dóttur og konu, sem er ógeðslega fyndin og skipuleggur reglulega eitthvað skemmtilegt fyrir starfsfólk UNICEF.
Hólmfríður Anna Baldursdóttir hefur starfað hjá UNICEF á Íslandi síðan árið 2004. Hún hefur gengið í öll störf hjá UNICEF en mestmegnis þó í kynningarmálin. Anna starfaði áður við fjölmiðla.
Jóhanna Guðmundsdóttir hefur starfað hjá UNICEF á Íslandi frá árinu 2008, með hléum. Hún hóf ferilinn sem hópstjóri götukynna, en vegna ótrúlegrar hæfni í tölvukerfum, vesenis vinnu og flestu öðru þá var hún ráðin í fullt starf á skrifstofu og gengur nú undir nafninu Tætarinn. Jóhanna hefur einnig klárað bæði BA próf í mannfræði og kennsluréttindanám við H.Í. á þeim árum sem hún hefur starfað hjá UNICEF. Hún er einnig mikill sjálfboðamógúll og var stjórnarformaður í AUS (alþjóðlegra ungmennaskipta). Kærastinn hennar Jóhönnu sér um tölvumálin á kontórnum og rekur fyrirtækið Davíð&Golíat.
Sigríður Víðis Jónsdóttir tók við sem upplýsingafulltrúi UNICEF í lok mars 2011 í afleysingum. Sigga var hinsvegar svo ótrúlega öflug að UNICEF gat ekki sleppt af henni takinu. Sigga er borin og barnfædd á Akranesi en flutti suður í sollinn um tvítugt. Hún lærði heimspeki og mannfræði og lauk síðan framhaldsnámi í þróunarfræði. Sigga hefur alltaf haft óstjórnlega þörf fyrir að skrifa og ferðast og líður aldrei betur en með bakpoka á bakinu. Hún vann áður fyrir fjölmiðla, lengst af á Morgunblaðinu.
Lovísa Árnadóttir er nýjasti meðlimurinn í UNICEF fjölskyldunni á Íslandi. Hún skrifaði skýrslu á vegum UNICEF um aðstæður barna á Íslandi og þær ógnir sem steðja að börnum í samfélaginu, en skýrslan kom út árið 2011. Lovísa kom brakandi fersk úr lögfræðinámi og reyndist UNICEF svo vel að hún var ráðin í hálft starf til að sjá um innanlands- og réttindamál barna á Íslandi. Meðfram starfi stundar hún enn frekara lögfræðinám.