01. febrúar 2022

Fjölskyldur á heljarþröm vegna langvarandi þurrka í Eþíópíu

„Áhrif þessara þurrka eru skelfileg,“ segir Gianfranco Rotigliano, fulltrúi UNICEF í Eþíópíu

1, febrúar 2022 „Áhrif þessara þurrka eru skelfileg,“ segir Gianfranco Rotigliano, fulltrúi UNICEF í Eþíópíu. Síðastliðin þrjú rigningatímabil í landinu hafa brugðist með tilheyrandi uppskerubrestum, vatnsskorti og dauða búfénaðar sem skilið hafa hundruð þúsunda barna og fjölskyldur þeirra eftir á heljarþröm. Landssvæði í suður- og austurhluta Eþíópíu, Afar, Oromia, SNNPR og Somali héruð, hafa orðið verst úti.

„Börn og fjölskyldur þeirra berjast nú fyrir lífi sínu við þessar aðstæður og áætlað er að 6,8 milljónir Eþíópíubúa muni þurfa á bráðri neyðaraðstoð að halda um miðjan næsta mánuð. Við erum einnig að sjá mikla fólksflutninga frá þessum verstu svæðum,“ segir Rotigliano í tilkynningu frá UNICEF.

„Á svæðunum Oromia og Somali eru nú um 225 þúsund vannærð börn og rúmlega 100 þúsund óléttar konur eða konur með börn á brjósti sem þurfa næringaraðstoð ekki seinna en núna. Skortur á hreinu vatni eykur enn á vanda þessara kvenna og barna. Ef börnin neyðast til að drekka óhreint vatn gerir það þau augljóslega berskjölduð fyrir ótal sjúkdómum. Þar á meðal niðurgangi sem er ein helsta dánarorsök barna undir fimm ára aldri hér,“ segir Rotigliano.

UNICEF vinnur að því í samstarfi við stjórnvöld á hverju svæði að veit nauðsynlega neyðaraðstoð og koma til móts við þarfir íbúa. Meðal annars með því að laga borholur, brunna og vantsveitukerfi, flytja vatn, vatnstanka, meðhöndla alvarlega vannærð börn og tryggja barnavernd og neyðarkennslustofur.

UNICEF áætlar að þurfa 31 milljón dala til að bregðast við neyðinni á þurrkasvæðum Eþíópíu. Heildarfjárþörf UNICEF vegna mannúðaraðstoðar í Eþíópíu alls á árinu nemur rúmum 350 milljónum dala.

Það er í verkefni sem þessi hjá UNICEF sem stuðningur Heimsforeldra UNICEF skiptir sköpum. Þú getur lagt þitt af mörkum með því að gerast Heimsforeldri hér.

Lesa má meira um neyðarástand vegna þurrka í Eþíópíu hér.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn