22. september 2023

Framkvæmdastjóri UNICEF segir Ísland í sérflokki

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra fundaði í dag með Catherine Russell, framkvæmdastjóra UNICEF – Íslenska ríkið hækkar kjarnaframlög sín til UNICEF og er í hópi fyrirmyndarstyrktaraðila

Þórdís Kolbrún og Catherine Russell eftir undirritunina í New York í dag. Mynd/UNICEF

Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, fundaði í dag með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands, í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York þar sem þær undirrituðu endurnýjun á rammasamning um kjarnaframlög íslenska ríkisins til UNICEF.

Líkt og greint hefur verið frá tilkynntu íslensk stjórnvöld fyrr á þessu ári að ákveðið hafi verið að hækka kjarnaframlög íslenska ríkisins til UNICEF umtalsvert. Framlagið hækkar úr 150 milljónum á ári í 230 milljónir, eða um ríflega 50%. Ísland er í hópi fyrirmyndarstyrktaraðila hjá UNICEF vegna hárra kjarnaframlaga og mikils stuðnings miðað við höfðatölu. UNICEF er sömuleiðis skilgreind sem ein af fjórum lykilstofnunum utanríkisráðuneytisins í marghliða þróunarsamvinnu Íslands.

Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, hrósaði Íslandi í hástert á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter) í kjölfar fundarins og sagði Ísland í sérflokki á heimsvísu þegar kemur að réttindum barna, jafnrétti kynjanna og stuðningi við mannúðarstarf UNICEF um allan heim.

 

Á sama tíma og fjölmargar þjóðir hafa dregið saman í framlögum sínum til þróunarsamvinnu fagnar UNICEF á Íslandi því að sjá íslensk stjórnvöld fara fram með góðu fordæmi og bæta í þetta mikilvæga starf svo um munar. Við getum öll verið stolt af því.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn