24. ágúst 2022

Hálft ár af stríði í Úkraínu: Hátt í þúsund börn látin eða særð 

Fimm börn að meðaltali látið lífið eða særst á hverjum degi. 

Á fyrirburadeild þessa sjúkrahúss í Kíev er nýfæddri stúlku komið fyrir í sérstökum færanlegum “hitapoka”. UNICEF fékk þessa poka frá bandarísku góðgerðasamtökunum Embrace og hefur dreift á sjúkrahús í Dnipro, Sumy, Pokrovsk og fleiri borgir í Úkraínu. Læknar segja þessa poka mjög mikilvæga.

Sex mánuðir eru nú síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst og hafa að minnsta kosti 972 börn látið lífið eða særst í átökunum. Þetta þýðir að síðan stríðið hófst hafa að meðaltali fimm börn látið lífið eða særst á hverjum degi. 

Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir erfitt að ímynda sér hversu miklu úkraínsk börn hafi glatað síðasta hálfa árið. 

„Þessar tölur eru aðeins þær sem Sameinuðu þjóðirnar hafa náð að staðfesta. Við teljum að þær séu i raun mun hærri. Það er sprengjuregn sem kostar flest börn lífið. Þessi stríðsvopn gera ekki greinarmun á hermönnum og almennum borgurum, sérstaklega þegar þeim er varpað á íbúðabyggðir- eins og raunin hefur verið í Úkraínu. Í Mariupol, Luhansk, Kremenchuk og Vinnytsia”, segir Russell í yfirlýsingu sinni vegna þessara nöturlegu tímamóta í stríðinu. 

Börn í lífshættu og mikilvæg innviði í molum 

„Enn og aftur sjáum við, líkt og í öllum öðrum stríðum, hvernig skeytingarlausar ákvarðanir fullorðinna setja börn í lífshættu. Það er engin leið að heyja stríð af þessu tagi án þess að skaða börn. Á sama tíma má ekki gleyma þeim börnum sem komist hafa lífs af en hafa séð og upplifað hræðilega hluti sem munu skilja eftir sálrænt ör um ókomna tíð. Eitthvað sem ekkert barn ætti að þurfa að ganga í gegnum,“ segir Russell. 

Hún bendir á að eftir viku ætti skólaárið í Úkraínu að vera að hefjast. 

„Skólakerfi Úkraínu er í molum vegna þessara átaka og vegna þess hvernig skólar hafa verið notaðir sem skotmörk þora foreldrar og forráðamenn ekki að senda börnin sín í skóla. Við áætlum að einn af hverjum tíu skólum hafi skemmst eða verið eyðilagðir á þessu hálfa ári. Öll börn þurfa skóla og menntun, líka þau sem lifa í neyðarástandi. Börnin í Úkraínu og þau sem flúið hafa eru engin undantekning þar á.“ 

UNICEF kallar eftir frið 

UNICEF ítrekar ákall sitt um tafarlaust vopnahlé í Úkraínu og að öll börn hljóti þá vernd sem þau eiga rétt á. Hætt verði tafarlaust að beita sprengjuvopnum í íbúðabyggðum og ráðast á opinberar byggingar og innviði. 

„Börn í Úkraínu þurfa nauðsynlega á öryggi, stöðugleika, aðgengi að menntun, barnavernd og sálrænni aðstoð að halda. En umfram allt þá þurfa börn í Úkraínu frið.“ 

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi 

UNICEF hefur verið að störfum í Úkraínu frá upphafi stríðs og í mörg ár þar áður við að tryggja réttindi barna og velferð. Ef þú vilt leggja þitt af mörkum til að tryggja áframhald á þau mikilvægu verkefni UNICEF vegna stríðsins í Úkraínu er hægt að styðja neyðarsöfnunina HÉR:   

Sendu SMS-ið UNICEF í númerið 1900 til að styrkja um 1.900 kr. 
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102060 kt. 481203-2950.
Þá tökum við sömuleiðis við AUR greiðslum í númerið 123-789-6262 eða með því að skrifa @unicef.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn