31. mars 2022

Kanarí grínstjórar á Heimsins mikilvægasta kvöldi

Stjörnulið skemmtikrafta í grínsketsum söfnunar- og skemmtiþáttar UNICEF á RÚV 2. apríl klukkan 19:45

Kanarí mun gleðja í tilfinningarússibanareiðinni sem verður „Heimsins mikilvægasta kvöld.“

Grínhópurinn Kanarí mun halda uppi gleðinni sem grínstjórar á „Heimsins mikilvægasta kvöldi“ söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF á Íslandi sem verður í beinni útsendingu á RÚV laugardagskvöldið 2. apríl klukkan 19:45. Kanarí hefur vakið mikla athygli undanfarið, meðal annars fyrir grínþætti sína á RÚV og tóku því fagnandi að geta lagt UNICEF og góðu málefni lið sem grínstjórar þáttarins.  

„Það er mikill heiður fyrir okkur að fá að vera grínstjórar á  Heimsins mikilvægasta kvöldi. Að fá að nota grínið okkar til að vekja athygli fólks á bágri stöðu barna víðs vegar um heiminn er ómetanlegt. Svo var líka sjúklega gaman að fá að vinna með Jóni Gnarr, Annie Mist og goðsögnunum úr Spaugstofunni og fleirum!“ segja Kanarí en hópurinn samanstendur af Guðmundi Felixsyni, Steiney Skúladóttur, Guðmundi Einari, Mána Arnarsyni, Pálma Frey Haukssyni og Eygló Hilmarsdóttur.

Heimsins mikilvægasta kvöld er þáttur sem enginn má missa af. Þar verður fjallað um stríðið í Úkraínu og neyðaraðgerðir UNICEF á svæðinu og eins sýnt frá margvíslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónaveirunnar á líf barna, meðal annars í Malaví, Sierra Leone, Indónesíu, Bangladess og Jemen.   

Gleði og von mun gegna mikilvægu hlutverki í þættinum við að tryggja jafnvægi í þeirri tilfinningarússíbanareið sem þátturinn mun leiða áhorfendur um. Óhætt er að segja að Kanarí hafi lyft grettistaki í að fá ótal þjóðþekkta einstaklinga til liðs við sig fyrir gríninnslög þáttarins, eins og sjá má í meðfylgjandi stiklu. 

Meðal gestaleikara í innslögum grínstjóranna má nefna: 
Annie Mist Þórisdóttir, Jón Gnarr, Steindi Jr., Randver Þorláksson, Pálmi Gestsson, Gísli Örn Garðarsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Að ógleymdu stjörnuliði tónlistarfólks á borð við Glowie, Jón Jónsson, Króla, Reykjavíkurdætur, Bassa Maraj, Gugusar, JFDR og Vigdísi í Flott, sem koma að geggjaðri endurgerð á Prumpulaginu sem einmitt fagnar 25 ára afmæli sínu á þessu ári.

Heimsins mikilvægasta kvöld er þáttur sem enginn má missa af. UNICEF á Íslandi þakkar öllum þeim fjölmörgu sem gáfu vinnu sína og lögðu samtökunum lið til að láta hann verða að veruleika. Styrktaraðilar átaksins eru Vodafone, Lindex, og Kvika banki. Einnig fær UNICEF á Íslandi styrk frá Utanríkisráðuneytinu til að halda úti öflugu kynningar- og fræðslustarfi sem er hluti af þættinum. Auglýsingastofan TVIST vann markaðsátak herferðarinnar og útlit þáttarins. 

Komdu í hóp heimsins bestu foreldra og horfðu á Heimsins mikilvægasta kvöld, laugardaginn 2. apríl klukkan 19:45 á RÚV.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn