24. mars 2022

Mánuður af stríði: Meira en helmingur allra barna í Úkraínu verið hrakinn á flótta

Í dag er mánuður síðan Rússar hófu innrás sína í Úkraínu með þeim afleiðingum að alls 4,3 milljónir barna, ríflega helmingur allra barna í Úkraínu, hafa neyðst til að flýja heimili sín.

24. mars 2022 Í dag er mánuður síðan Rússar hófu innrás sína í Úkraínu með þeim afleiðingum að alls 4,3 milljónir barna, ríflega helmingur allra barna í Úkraínu, hafa neyðst til að flýja heimili sín. Samkvæmt tilkynningu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur 1,8 milljónir barna flúið yfir landamærin til nágrannaríkja en 2,5 milljónir barna eru nú á vergangi innanlands.

Viltu styðja starf UNICEF?: Komdu í hóp heimsins bestu foreldra í dag.

„Ekki síðan í síðari heimsstyrjöldinni hefur annar eins fjöldi barna neyðst til að flýja heimili sín á svo skömmum tíma og í þessu stríði,“ segir í Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, í yfirlýsingu. „Þetta eru óhugnanleg tímamót sem gætu haft varanlegar afleiðingar fyrir næstu kynslóðir. Öryggi barna, velferð þeirra og aðgengi að nauðsynlegri þjónustu er ógnað vegna þrotlausra árása og skelfilegs ofbeldis,“ bætir Russell við.

78 börn látið lífið og grunnstoðir sæta árásum

Samkvæmt tölum Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna hafa 78 börn látið lífið og 105 börn særst síðan stríðið hófst þann 24. febrúar síðastliðinn. Þetta eru þó aðeins staðfestar tölur Sameinuðu þjóðanna og talið líklegt að þær séu í raun mun hærri.

Loftárásir hafa haft skelfilegar afleiðingar á nauðsynlega innviði og aðgengi almennings að grunnþjónustu.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) greinir frá 52 árásum á starfsemi heilbrigðisstofnana. Menntamálaráðuneyti Úkraínu segir að skemmdir hafi orðið á yfir 500 skólabyggingum. 1,4 milljónir barna hafa nú ekki aðgengi að öruggu vatni, 4,6 milljónir manna hafa takmarkað aðgengi að vatni eða eiga á hættu að verða vatnslaus. Þá vantar 450 þúsund börn á aldrinum 6-23 mánaða næringaraðstoð.

„Á fáeinum vikum þá hefur stríðið gjöreyðilagt svo margt fyrir börnum í Úkraínu. Börn þurfa tafarlaust frið, vernd og öryggi,“ segir Russell, og bætir við: „UNICEF kallar sem fyrr eftir vopnahléi nú þegar og að réttindi og vernd barna verði tryggð. Stofnanir og nauðsynlegir innviðir sem börn reiða sig á eiga aldrei að vera í skotlínu stríðsátaka.“

Viltu styðja starf UNICEF?: Komdu í hóp heimsins bestu foreldra í dag.

Starf UNICEF á vettvangi

UNICEF og samstarfsaðilar vinna nú þrotlaust að því að ná til barna í Úkraínu og í nágrannaríkjum til að veita þeim nauðsynlega mannúðaraðstoð. Í Úkraínu hefur UNICEF flutt sjúkragögn til 49 sjúkrahúsa á 9 landsvæðum, þar á meðal Kænugarði, Kharkiv, Dnipro og Lviv. UNICEF hefur aukið stuðning við færanleg barnaverndarteymi sín sem starfa á vettvangi og fjölgað þeim úr 22 í 50 og nú þegar hafa borist 63 flutningabílar af hjálpargögnum til aðstoðar 2,2 milljónum íbúa Úkraínu. Á komandi vikum mun UNICEF svo hefja úthlutun á neyðarfjármagni til handa viðkvæmustu fjölskyldunum og koma upp barnvænum svæðum á lykilsvæðum um allt landið.

Komdu í hóp „Heimsins bestu foreldra“ og leggðu þitt af mörkum

UNICEF á Íslandi hefur frá upphafi átaka í Úkraínu staðið fyrir neyðarsöfnun vegna stríðsins. Viðbrögð almennings, fyrirtækja og samstarfsaðila hafa verið vonum framar og tugir milljóna safnast til góðra verka. Samtakamáttur íslensku þjóðarinnar hefur verið aðdáunarverður.

Í vikunni hóf UNICEF á Íslandi svo átak undir yfirskriftinni „Heimsins bestu foreldrar“ til að fjölga Heimsforeldrum enda hefur mikilvægi þeirra sýnt sig undanfarið, sem endranær. Mánaðarleg framlög Heimsforeldra tryggja getu UNICEF til að vera til staðar þar sem neyðin er og sveigjanleika til að bregðast skjótt við þegar skálmöld skellur á, rétt eins og kom á daginn í Úkraínu fyrir mánuði síðan.

Framlög nýrra Heimsforeldra munu renna til Úkraínu í þrjá mánuði

Í átakinu sem hófst í vikunni munu framlög nýrra Heimsforeldra næstu þrjá mánuði renna beint til starfs UNICEF vegna Úkraínu. Ísland á heimsmet í fjölda Heimsforeldra og minnum við því þann mikla fjölda núverandi Heimsforeldra einnig á að alltaf er hægt að hafa samband við skrifstofu UNICEF á Íslandi og hækka núverandi framlag sitt, ef áhugi er á.
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er með starfsemi í yfir 190 löndum og er á vettvangi margra stríða. Í öllum þessum verkefnum, nær og fjær, skiptir hvert framlag máli. Komdu í hóp heimsins bestu foreldra í dag.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn