28. febrúar 2023

2,5 milljónir tyrkneskra barna þurfa aðstoð

Framkvæmdastjóri UNICEF heimsótti hamfarasvæði

Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, við rústir bygginga í Kahramanmaras. Mynd:UNICEF

Tveggja daga heimsókn Catherine Russell, framkvæmdastjóra UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, til Tyrklands lauk í dag. Þar hitti hún fyrir börn og fjölskyldur sem lentu í skjálftunum stóru við landamæri Tyrklands og Sýrlands fyrr í mánuðinum.

„Skjálftarnir voru algjörar hörmungar fyrir börn og fjölskyldur á þessum svæðum og hvert sem við fórum sáum við afleiðingarnar. Fjölskyldur sundraðar og daglegu lífi fólks algjörlega umturnað. Hver byggingin á fætur annarri rústir einar og í rústunum sást teppi, leikfang, barnabók og aðrar leifar af lífi barns sem ýmist hefur misst allt sitt eða látið lífið,“ segir Russell.

Russell lagði áherslu á mikilvægi þjónustu við eftirlifendur, vatn, hreinlæti og sálrænan stuðning við börn sem búa nú við erfiðar aðstæður. Hún heimsótti barnvæn svæði UNICEF í borginni Gaziantep þar sem fjölskyldur og börn fá slíkan stuðning og aðstoð við að ná sér. Hún hitti fjölskyldur í Kahramanmaras og tímabundna húsnæðismiðstöð þar sem búa 17 þúsund einstaklingar – nærri einn þriðji þeirra eru börn.

UNICEF vinnur náið með stjórnvöldum og stofnunum Tyrklands í að veita börnum og fjölskyldum sálrænan stuðning í kjölfar hamfaranna. Einnig við að setja upp barnvæn svæði, tímabundnar kennslustofur, aðstoða fylgdarlaus börn og önnur sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar og sameina fjölskyldur. Þá vinnur UNICEF einnig að því að meta skemmdir á vatnsveitum og þjónustu og veitir heilbrigðis- og næringarþjónustu.

UNICEF áætlar að 2,5 milljónir barna í Tyrklandi þurfi tafarlaust á mannúðaraðstoð að halda. Þegar hefur UNICEF náð til nærri 277 þúsund einstaklinga og fært þeim hjálpargögn og tæplega 200 þúsund fengið sálrænan stuðning.

Ljóst er að risavaxin verkefni í bæði í brýnum mannúðarstörfum sem og langtímauppbyggingu eru fram undan á hamfarasvæðum og mun UNICEF ekki láta sitt eftir liggja í að verja og tryggja réttindi og velferð tyrkneskra og sýrlenskra barna.

Hópur ungra drengja sem býr í tímabundnu húsnæðisúrræði í Kahramanmaras sem nýtur góðs af hjálpargögnum frá UNICEF.

UNICEF vinnur náið með stjórnvöldum og stofnunum Tyrklands í að veita börnum og fjölskyldum sálrænan stuðning í kjölfar hamfaranna. Einnig við að setja upp barnvæn svæði, tímabundnar kennslustofur, aðstoða fylgdarlaus börn og önnur sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar og sameina fjölskyldur. Þá vinnur UNICEF einnig að því að meta skemmdir á vatnsveitum og þjónustu og veitir heilbrigðis- og næringarþjónustu.

UNICEF áætlar að 2,5 milljónir barna í Tyrklandi þurfi tafarlaust á mannúðaraðstoð að halda. Þegar hefur UNICEF náð til nærri 277 þúsund einstaklinga og fært þeim hjálpargögn og tæplega 200 þúsund fengið sálrænan stuðning.

Ljóst er að risavaxin verkefni í bæði í brýnum mannúðarstörfum sem og langtímauppbyggingu eru fram undan á hamfarasvæðum og mun UNICEF ekki láta sitt eftir liggja í að verja og tryggja réttindi og velferð tyrkneskra og sýrlenskra barna.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn