13. október 2020

Skólapeysur UNICEF komnar í sölu

UNICEF á Íslandi hefur hafið sölu á þessum flottu og þægilegu hettupeysum fyrir börn og fullorðna. Allur ágóði af sölu peysunnar rennur til styrktar baráttu UNICEF fyrir velferð og réttindum barna um allan heim þar sem forgangsatriði er að tryggja menntun barna á tímum COVID-19.

UNICEF á Íslandi hefur hafið sölu á þessum flottu og þægilegu hettupeysum fyrir börn og fullorðna. Allur ágóði af sölu peysunnar rennur í baráttu UNICEF fyrir velferð og réttindum barna um allan heim þar sem forgangsatriði er að tryggja menntun barna á tímum COVID-19.

Menntun heillar kynslóðar í húfi

Það hefur aldrei verið jafn brýnt að styðja við menntun barna og nú, en það ríkir neyðarástand í menntamálum víða um heim. Áhrif kórónaveirunnar á menntun er gífurleg og þar er ekkert land undanskilið. Þegar skólar þurftu að loka til að hefta útbreiðslu COVID-19 í vor hafði það áhrif á menntun 1,6 milljarða barna í 190 löndum. Að minnsta kosti þriðjungur skólabarna gat ekki stundað fjarnám (í gegnum sjónvarp, útvarp, síma eða tölvu) þegar skólarnir þeirra lokuðu. Þetta eru um 463 milljónir barna. Verst er staða barna í Afríku sunnan Sahara, en þar hafði helmingur skólabarna engan aðgang að fjarkennslu.

Hætta er á að menntun heillar kynslóðar sé í húfi ef ekki er brugðist við. Menntun er öflugasta vopnið gegn fátækt og hungri, eykur jafnrétti kynjanna og er lykillinn að bjartri framtíð og því leggur UNICEF nú megin áherslu á að tryggja rétt allra barna til náms.

Ekki missa af - takmarkað upplag í boði!

Með því að kaupa skólapeysu eignast þú góða peysu fyrir veturinn og styður um leið réttindi barna á þessum erfiðu tímum. Á meðan kórónaveiran heldur áfram að herja á heimsbyggðina verður óhjákvæmilegt að skólar muni halda áfram að loka víða og að nemendur og kennarar þurfi að styðjast við fjarkennslu til lengri eða skemmri tíma. UNICEF hefur í áratugi barist fyrir því að öll börn geti menntað sig og er það með stuðningi almennings sem gerir okkur kleift að koma á fjarkennslu á afskekktum svæðum, setja upp viðunandi hreinlætisaðstöðu í skólum til að tryggja sóttvarnir, útdeila námsgögnum í flóttamannabúðum og vinna með foreldrum skólabarna til að þau geti stutt menntun barna sinna á þessum tímum, svo nokkuð sé nefnt.

Skólapeysa UNICEF er fáanleg í bæði barna- og fullorðinsstærðum. Takmarkað upplag er í boði og því um að gera að verða sér úti um peysu áður en þær seljast upp. Vegna aðstæðna í samfélaginu er skrifstofa UNICEF á Íslandi lokuð og því einungis hægt að panta peysurnar í heimsendingu eða sendingu á næsta pósthús. Hægt er að kaupa peysur HÉR.

Hægt er að fræðast meira um það sem UNICEF gerir til að tryggja menntun barna á tímum kórónaveirunnar hér.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn