15. mars 2022

Sýrlensk börn særð á líkama og sál eftir 11 ár af stríði

Í gær létu þrjú börn lífið þegar sprengjuleifar sprungu á jörðu niðri í Aleppo-borg í Sýrlandi.

15. mars 2022 Í gær létu þrjú börn lífið þegar sprengjuleifar sprungu á jörðu niðri í Aleppo-borg í Sýrlandi. Ellefu ár eru síðan átök og mannúðarkrísan hófust í Sýrlandi. Þessi átök, árásir og fólksflótti sem skilur börn eftir á vergangi í eigin landi er hvergi nærri lokið. Og áhrifanna gætir mest á lífi saklausra barna.

900 börn létust eða særðust í átökum í Sýrlandi á síðasta ári. Til að setja þann fjölda í íslenskt samhengi þá er það aðeins minna en sem nemur öllum börnum, 14. ára og yngri, sem bjuggu á Seltjarnarnesi á síðasta ári (931). Jarðsprengjur, sprengjuleifar og önnur ósprungin hergögn voru helsta ástæða þess að börn létu lífið eða særðust í Sýrlandi í fyrra.

Síðan stríðið hófst í Sýrlandi fyrir 11 árum síðan er fjöldi barna sem látið hefur lífið eða særst í átökunum að nálgast 13 þúsund. Til að setja þann fjölda í samhengi þá er það meira en sem nemur öllum íbúum Mosfellsbæjar á síðasta ári (12.227).

„Nærri fimm milljónir barna hafa fæðst í Sýrlandi frá árinu 2011 og hafa aldrei þekkt annað en stríð og átök. Í mörgum hlutum Sýrlands lifa börn í sífelldum ótta við hættuna af yfirvofandi árásum, jarðsprengjum og öðrum leifum stríðsins,“ segir Bo Viktor Nylund, fulltrúi UNICEF í Sýrlandi, í tilkynningu vegna þessara sorglegu tímamóta stríðsins þar í landi.

Í Sýrlandi og nærliggjandi ríkjum eru 5,8 milljónir barna sem þarfnast mannúðaraðstoðar. UNICEF og samstarfsaðilar vinna áfram sem endranær þrotlaust að vernd þessara barna, réttindagæslu og velferð. Ekki síst að hjálpa þeim að vinna úr því sálræna áfalli sem fylgir því að alast upp sem barn í stríði og á sífelldum flótta.

UNICEF á Íslandi hefur um árabil staðið fyrir neyðarsöfnun fyrir börn frá Sýrlandi. Hér finnur þú upplýsingar um hvernig þú getur styrkt þá söfnun.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn