17. ágúst 2022

UNICEF á Íslandi opnar UNICEF-Akademíuna

Þekking er lykillinn að árangri í réttindabaráttu

Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forseti Akademías, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Hjördís Freyja Kjartansdóttir, meðlimur ungmennaráðs UNICEF á Íslandi og Sigyn Blöndal, Hanna Borg Jónsdóttir, Pétur Hjörvar Þorkelsson og Eva Bjarnadóttir, sérfræðingar í innanlandsteymi UNICEF á Íslandi.

Í dag opnaði UNICEF á Íslandi nýjan rafrænan fræðsluvettvang sem ber heitið UNICEF-Akademían. Opnunin fór fram í húsakynnum Akademías í Borgartúni. Í UNICEF-Akademíunni er boðið upp á fræðslumyndbönd og námskeið fyrir börn og fullorðna, ásamt réttindafræðsluefni fyrir skóla. UNICEF á Íslandi hefur það að markmiði að auka þekkingu á réttindum barna og er UNICEF-Akademían því opin öllum og gjaldfrjáls.  

„Við höfum einbeitt okkur að réttindafræðslu undanfarin ár með það að markmiði að byggja upp þekkingu á Barnasáttmálanum, jafnt meðal barna og innan stjórnkerfisins, og stuðla þannig að betri ákvörðunatöku þegar kemur að málefnum barna. Þekking er grunnurinn að öllum framförum og lykillinn að árangri í réttindabaráttu,“ segir Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsteymis UNICEF á Íslandi.  

Á heimasíðu Akademíunnar er að finna námskeið fyrir sveitarfélög og skóla, ásamt áhugaverðu fræðsluefni fyrir börn og fullorðna þar sem sérfræðingar UNICEF fræða um mannréttindi og Barnasáttmálann og Ævari Þór Benediktssyni, sendiherra UNICEF á Íslandi, meðal annars bregður fyrir.

Jafnt aðgengi að réttindafræðslu um allt land

Undanfarin ár hefur UNICEF á Íslandi frætt mikinn fjölda barna og starfsfólks sveitarfélaga í gegnum verkefnin Barnvæn sveitarfélög, Réttindaskóli og -frístund og UNICEF-Hreyfinguna. Verkefnin eru unnin um allt land og mun rafrænn fræðsluvettvangur tryggja jafnt aðgengi barna og fullorðinna að fræðslu sem byggir á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.  

Sérstakur gestur á opnun UNICEF-Akademíunnar var Marie Wernham,  sérfræðingur hjá UNICEF í réttindafræðslu, sem brýndi fyrir gestum opnunarinnar hversu mikilvægt það er að allir læri um réttindi barna. Þá fjallaði Hjördís Freyja Kjartandsdóttir, meðlimur ungmennaráðs UNICEF, um mikilvægi þess að sýna börnum þá virðingu sem þau eiga skilið, gefa börnum rödd og að hlusta á hugmyndir þeirra og skoðanir. „Það er svo ótrúlega mikilvægt að þið, fullorðna fólkið, hlustið á okkur og takið þeirri fræðslu sem þið fáið alvarlega og með opnum augum. Við hjá UNICEF sjáum börn sem unga borgara og réttindahafa nútímans sem eru hæf í að taka ákvarðanir í málefnum sem tengjast þeim. [...] Við verðum að vinna saman, bera virðingu fyrir hvort öðru og efla framtíðina,“ sagði Hjördís, og uppskar mikið lófaklapp.

Við hvetjum alla að kynna sér fræðsluvettvanginn UNICEF-Akademían í kynningarmyndbandi hér og skoða þá fræðslu sem er öllum opin að kostnaðarlausu á www.unicef.is.

Verkefnið er styrkt af Mennta- og barnamálaráðuneytinu og áætlun Evrópusambandsins um réttindi, jafnrétti og borgararétt og þróað í samstarfi við Akademías. 

 

 

 

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn