16. september 2021

UNICEF afhjúpar táknræna útstillingu fyrir tapaðar skólastundir á árinu

UNICEF afhjúpaði í dag táknræna útstillingu við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York sem telur klukkustundir af kennslu sem börn hafa tapað vegna heimsfaraldurs COVID-19. Verkið ber yfirskriftina „Við megum engan tíma missa“ (e. „No Time to Lose“).

17. september 2021 UNICEF afhjúpaði í dag táknræna útstillingu við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York sem telur klukkustundir af kennslu sem börn hafa tapað vegna heimsfaraldurs COVID-19. Verkið ber yfirskriftina „Við megum engan tíma missa“ (e. „No Time to Lose“).

Börn á skólaaldri um allan heim hafa samanlagt orðið af alls 1,8 billjón klukkustundum af kennslu í eigin persónu í skólastofum vegna heimsfaraldurs COVID-19 og skólalokana. Fyrir vikið hafa börn orðið af mikilvægri menntun og öðrum jákvæðum og uppbyggilegum tengslum við skóla. Því lengra sem líður eykst hættan á að mörg þessara barna snúi ekki aftur í skóla, verði send út að vinna eða gift barnung. Framtíð þeirra er í húfi.

Að þessu tilefni hefur UNICEF stillt upp stórri klukku, sem lítur út eins og krítartafla í tómri kennslustofu, við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna og sýnir í rauntíma áætlaðar stundir af kennslu sem tapast hafa. Í kennslustofunni eru 18 tóm skrifborð, eitt fyrir hvern mánuð sem heimsfaraldurinn hefur raskað skólastarfi um allan heim.

76. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefst í dag og er útstillingunni ætlað að brýna fyrir þjóðarleiðtogum frá öllum heimshornum mikilvægi þess að forgangsraða í þágu barna og menntunar í heimsfaraldrinum.

Heil kynslóð svikin um tækifæri

„Við erum að snuða heila kynslóð og framtíð þeirra hangir á bláþræði fyrir vikið. Við verðum að setja enduropnun skóla í forgang og styðja við þá sem af mestu hafa orðið. Við megum engan tíma missa,“ segir Anónio Guterres, Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, í tilkynningu vegna málsins.

Á heimsvísu hafa um 131 milljón skólabarna orðið af þremur fjórðu af námi sínu með viðveru í kennslustofu frá mars 2020 til september 2021. Af þeim hafa 77 milljónir orðið af nær öllu sínu námi í eigin persónu. Um 27 prósent þjóða búa enn við að skólar séu ýmist að fullu eða að hluta lokaðir vegna faraldursins. Samkvæmt nýjustu tölum UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, búa 870 milljónir nemenda á öllum stigum við einhvers konar röskun á námi sínu.

Hver kennslustund dýrmæt

UNICEF ítrekar áskorun sína til stjórnvalda, hvar svo sem þau eru í veröldinni, að opna skóla á ný eins fljótt og auðið er og taka nauðsynleg skref til að tryggja óraskaða kennslu í skólum með viðeigandi sóttvörnum.

„Hver klukkustund sem barn ver í skólastofu er dýrmæt. Hún er tækifæri til að víkka sjóndeildarhring þeirra og hámarka hæfileika þeirra,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF.

„1,8 billjónir klukkustunda er óskiljanlega mikill tími. Það er sömuleiðis óskiljanlegt að forgangsraða ekki aðgerðum vegna COVID í þágu barna og framtíðar þeirra. Við verðum að opna þessa lokuðu skóla eins fljótt og hægt er. Klukkan tifar.“

UNICEF kallar eftir:

  • Að stjórnvöld forgangsraði í þágu öruggrar enduropnunar skóla, en tryggi einnig að börn geti haldið áfram að fá menntun af sambærilegum gæðum ef grípa þarf til fjarkennslu;
  • Að kennarar meti námsárangur og getu barna og tryggi að þau sem eftir hafa setið geti náð samnemendum sínum á sérstöku aðlögunartímabili náms;
  • Að stjórnvöld setji bólusetningu kennara í forgang;
  • Að stjórnvöld geri kennurum kleift að ná til barna og ungmenna sem hafa ekkert eða takmarkað aðgengi að tæknibúnaði, hvort heldur sem er snjalltæki, sjónvarp, útvarp eða í prenti;
  • Að stjórnvöld og styrktaraðilar verji og auki fjárfestingu í menntakerfinu á öllum stigum;
  • Að virkja opinberar stofnanir og einkageirann til samstarfs við stjórnvöld um að bæta netsamband og útbúa gott fjarkennsluefni á mörgum tungumálum sem sniðið er að þörfum nemenda;
  • Að skólastjórnendur og menntamálayfirvöld leiðbeini kennurum betur til að virkja samskipti þeirra við nemendur og nýta betur mismunandi kennsluvettvanga;
  • Að fjölskyldur og forráðamenn fái fullnægjandi stuðning og leiðsögn til að halda áfram námi heima fyrir þegar svo ber undir.
Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn