03. nóvember 2020

Yfir 16 milljónir í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Jemen

Staðan í Jemen er skelfilegri en orð fá lýst. Í Jemen geisar nú ein versta mannúðarkrísa heims og vannæring meðal barna í landinu hefur aldrei verið jafn alvarleg. Eftir margra ára átök þarfnast næstum hvert einasta barn í Jemen neyðaraðstoðar

Sérhver árás á barn, burtséð frá ástæðu og umhverfi, er skýlaust brot á mannréttindum. Hér eru systkinin Chuol, 4 ára og Nyayjaw, 8 ára en þau hafa ekki séð foreldra sína í tvo ár vegna átakanna í landinu.

UNICEF á Íslandi hóf neyðarsöfnun fyrir börn í Jemen í byrjun október. Á sama tíma tóku nokkur ungmenni sig saman og hófu söfnun undir yfirskriftinni „Deyja úr hungri“ þar sem öll framlög runnu í neyðarsöfnun UNICEF fyrir Jemen. Greinilegt er að almenningi er umhugað um að hjálpa börnum í Jemen því yfir 16 milljónir söfnuðust á fáeinum vikum. Til að setja upphæðina í samhengi þá samsvarar hún tveggja vikna meðferð af vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir 7638 vannærð börn.

Söfnunin er enn í fullum gangi og hægt er að leggja henni lið hér.

Líf heillar kynslóðar í húfi

„Staðan í Jemen er skelfilegri en orð fá lýst. Í Jemen geisar nú ein versta mannúðarkrísa heims og vannæring meðal barna í landinu hefur aldrei verið jafn alvarleg. Eftir margra ára átök þarfnast næstum hvert einasta barn í Jemen neyðaraðstoðar,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi. Í nýrri greiningu sem meðal annars UNICEF stóð að kom í ljós að bráðavannæring meðal ungra barna hefur aukist um 10% árið 2020 og þar sem staðan er verst þjást eitt af hverjum fimm börnum af bráðavannæringu. Smitsjúkdómar á borð við niðurgangspestir, kóleru og orma í meltingarvegi hafa dreifst hratt og heilbrigðiskerfið er í molum.

„Hundrað þúsund börn bara í suðurhluta Jemen eiga á hættu á að deyja án tafarlausrar meðferðar eða vera með varanlega vaxtaskerðingu. Ef ekki er brugðist við verður ástandið óafturkræft og líf heillar kynslóðar barna í Jemen í húfi,“ segir Steinunn. Við þær hörmungar sem hafa dunið á jemensku þjóðinni bætist nú kórónaveiran sem heilbrigðiskerfið er á engann hátt í stakk búið að kljást við.

Neyðarsöfnun enn í fullum gangi

UNICEF hefur verið með umfangsmiklar neyðaraðgerðir í Jemen í fjölda ára og munu framlögin úr neyðarsöfnuninni á Íslandi nýtast í að veita börnum í neyð í landinu lifsnauðsynlega hjálp. Það sem af er ári (janúar til lok ágúst 2020) hefur UNICEF meðal annars komið 126 þúsund börnum undir 5 ára aldri sem þjást af alvarlegri bráðavannæringu í viðunandi meðferð, bólusett yfir 1 milljón barna gegn mænusótt, tryggt yfir 4 milljónum aðgang að hreinu vatni og stutt menntun barna í miðjum kórónaveirufaraldri. UNICEF kallar auk þess á alla aðila að átökunum sem og alþjóðasamfélagið að vinna tafarlaust að friðsamlegri lausn og binda enda á ofbeldið gegn börnum í Jemen.

„Þó að staðan virðist yfirþyrmandi þá megum við aldrei gefast upp. Vannæring getur hljómað eins og óyfirstíganlegt vandamál en góðu fréttirnar eru þær að með réttri meðhöndlun ná flest börn sér á einungis fáeinum vikum. En tíminn er naumur og það þarf að bregðast við strax,“ segir Steinunn.

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Jemen er enn í fullum gangi. Hægt er að hjálpa með að senda SMS-ið JEMEN í númerið 1900 og gefa þannig 1900 krónur. Sú upphæð samsvarar rúmlega tveggja vikna meðferð við vannæringu fyrir eitt barn. Einnig er hægt að gefa frjálst framlag hér.

„Við viljum senda miklar þakkir til allra þeirra einstaklinga sem hafa stutt söfnunina okkar. Það er ómetanlegt að finna þessa samstöðu og greinilegt að almenningi á Íslandi er umhugað um velferð barna í Jemen. Hvert framlag skiptir máli og getur bjargað lífi barna,“ segir Steinunn að lokum.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn