24. ágúst 2021

Yfirlýsing UN Women og UNICEF á Íslandi vegna viðbragða íslenskra stjórnvalda við neyðarástandinu í Afganistan

Í yfirlýsingu sem UNICEF á Íslandi og UN Women á Íslandi sendu frá sér í dag segja samtökin að það sé jákvætt að sjá að ríkisstjórnin hafi samþykkt tillögur flóttamannanefndar vegna neyðarástandsins í Afganistan. Samtökin segja að þau viðbrögð og aðgerðir sem komu þar fram séu góð fyrstu skref en þau treysti því jafnframt að ákvörðunin sé ekki endastöð heldur varða í viðbrögðum Íslands við neyð Afgana. Samtökin minna á að um langtímaverkefni sé að ræða.

Ísland á að sýna gott fordæmi sem öflugur málsvari barna og kvenna á alþjóðavettvangi og taka á móti fólki í leit að alþjóðlegri vernd. Samtökin kalla eftir því að þeir Afganir sem sækja hér um alþjóðlega vernd njóti verndar hér á landi, að gerðar verði skýrar áætlanir um móttöku kvótaflóttafólks og að hlúð verði vel að þeim Afgönum sem eru hér nú þegar.

Að sama skapi minna samtökin stjórnvöld á að halda áfram stuðningi við neyðar- og mannúðarstarf í Afganistan. Neyðin í landinu var gríðarleg fyrir þar sem átök, fátækt, miklir þurrkar og áhrif COVID-19 stefndu lífi milljóna í hættu. Ljóst er að neyð fólks í Afganistan er mikil og fer versnandi því lengur sem óvissuástand varir.

UN Women og UNICEF hafa starfað lengi í Afganistan í þágu kvenna og barna. Á því verður engin breyting. Samtökin leggja allt kapp á að vernda konur og börn, tryggja þeim öruggt skjól og lífsnauðsynjar á borð við hreint vatn, næringu og heilsugæslu.

Samtökin hvetja íslensk stjórnvöld til að beita sér af öllum krafti til að tryggja áfram öryggi Afgana.

Samtökin hófu í síðustu viku neyðarsafnanir fyrir konur og börn í Afganistan sem hægt er að styðja hér og hér.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn