13. september 2021

UNICEF hvetur þjóðarleiðtoga til að aðstoða í Afganistan

„Hjálpið okkur. Það hefur aldrei verið mikilvægara að standa með börnunum í Afganistan og fólkinu sem aðstoðar þau,“ sagði Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í ávarpi sínu á ráðherrafundi um ástandið í Afganistan í Genf í dag.

13. september 2021 „Hjálpið okkur. Það hefur aldrei verið mikilvægara að standa með börnunum í Afganistan og fólkinu sem aðstoðar þau,“ sagði Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í ávarpi sínu á ráðherrafundi um ástandið í Afganistan í Genf í dag. Í ákalli sínu lagði Fore áherslu á að þjóðir létu ekki sitt eftir liggja og fjármögnuðu af fullum þunga neyðaraðgerðir við mannúðarkrísunni í Afganistan.

Á fundinum, sem aðalritari Sameinuðu þjóðanna boðaði til, fengu ráðherrar að heyra hvernig tíu milljónir afganskra barna þurfi á mannúðaraðstoð að halda til að lifa af. Hvernig ein milljón afganskra barna muni þjást af alvarlegri bráðavannæringu á þessu ári án aðgerða. Hvernig 600 þúsund Afgana, þar af helmingur þeirra börn, hafi neyðst til að flýja heimili sín á árinu og hvernig tala fylgdarlausra barna í landinu hækkar dag frá degi. Hvernig aðgerða sé þörf og það strax.

Í ávarpi sínu vék Fore að árangri UNICEF á vettvangi, en Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur verið til staðar fyrir fólkið í Afganistan í nærri sjötíu ár.

„Bara síðustu tvær vikur hefur UNICEF útvegað 170 þúsund manns drykkjarvatn í miðjum þurrkum. Haldið úti færanlegum teymum heilbrigðisstarfsmanna í fjórtán héruðum til að halda áfram að veita íbúum grunnheilbrigðisþjónustu. Síðustu vikuna í ágúst veitti UNICEF fjögur þúsund vannærðum börnum undir fimm ára aldri nauðsynlega næringarmeðferð,“ sagði Fore.

Hún benti á að ekkert af þessum væri mögulegt án framlínustarfsmanna UNICEF á vettvangi og starfsfólks UNICEF í Afganistan. Þau væru nú sem endranær reiðubúin að hætta lífi sínu til að þjóna börnunum í Afganistan. En þörf væri á frekari fjárstuðningi frá öllum þjóðum.

„Án ykkar stuðnings er hætt við að þessi lífsnauðsynlega þjónusta stöðvist og eymd þjóðar í sárum aukist enn. Ríki heimsins geta ekki látið það gerast.“

UNICEF á Íslandi hefur undanfarnar vikur staðið fyrir neyðarsöfnun fyrir börn í Afganistan. Viðbrögð landsmanna hafa verið virkilega jákvæð. Enn er hægt að styðja söfnunina með því að senda SMS-ið BARN í númerið 1900 ( til að gefa 1.900 krónur) eða gefa frjálst framlag hér.

Fleiri
fréttir

14. október 2024

„Börn hefja engin stríð“
Lesa meira

10. október 2024

370 milljónir stúlkna í heiminum beittar kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur
Lesa meira

08. október 2024

UNICEF afhent sjúkragögn handa tveimur milljónum í Líbanon
Lesa meira
Fara í fréttasafn