18. ágúst 2023

Yfirlýsing félagasamtaka á Íslandi vegna þjónustu við fólk á flótta

Samtökin skora á yfirvöld að tryggja öryggi þessa hóps og grunnaðstoð með virku samráði við hjálpar- og mannréttindasamtök. 

Neðangreind félagasamtök lýsa þungum áhyggjum af mjög alvarlegri stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila eftir neikvæða niðurstöðu umsóknar um vernd á báðum stjórnsýslustigum. Afdrif þess, öryggi og mannleg reisn eru í hættu.  

Samtökin harma að ekki skuli hafa verið tekið tillit til ítrekaðra varnaðarorða varðandi afleiðingar nýrra lagaákvæða. Þá leikur mikill vafi á að framkvæmdin standist þær mannréttindaskuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist.

Margt sem ráðamenn hafa sagt í þessari umræðu er villandi, óljóst og byggir á skorti á upplýsingum um raunverulega stöðu fólksins.

Samtökin skora á yfirvöld að tryggja öryggi þessa hóps og grunnaðstoð með virku samráði við hjálpar- og mannréttindasamtök. 

Því boða neðangreind samtök stjórnmálafólk og stjórnvöld til opins neyðarfundar nk mánudag 21. ágúst 2023 klukkan 17.00 í sal Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut 72. Sérstaklega hefur verið óskað eftir viðveru viðkomandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands.

Undir yfirlýsinguna rita:

Amnesty International 

FTA, félag talsmanna umsækjenda um vernd 

GETA hjálparsamtök 

Hjálparstarf kirkjunnar  

Hjálpræðisherinn á Íslandi 

Mannréttindaskrifstofa Íslands 

Rauði krossinn á Íslandi

Réttur barna á flótta 

Samhjálp

Samtökin 78 

Solaris 

Stígamót 

UNICEF á Íslandi 

UN Women á Íslandi 

W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna 

Þjóðkirkjan – prestar innflytjenda 

Þroskahjálp 

ÖBÍ - heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi

Fleiri
fréttir

14. október 2024

„Börn hefja engin stríð“
Lesa meira

10. október 2024

370 milljónir stúlkna í heiminum beittar kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur
Lesa meira

08. október 2024

UNICEF afhent sjúkragögn handa tveimur milljónum í Líbanon
Lesa meira
Fara í fréttasafn