14. september 2023

Eitt af hverjum sex börnum búa við sárafátækt

Á heimsvísu eru börn meira en 50 prósent þeirra sembúa við sárafátækt, þrátt fyrir að vera aðeins þriðjungur jarðarbúa. Börn eru meira en tvöfalt líklegri en fullorðnirtil þess að skortamat, hreinlætisaðstöðu, skjól, heilbrigðisþjónustu og menntun sem þörf er á til þess að lifa af og dafna.

Samkvæmt nýrri skýrslu á vegum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðabankans, þá býr eitt af hverjum sex börnum á heimsvísu við sárafátækt. Alls eru 333 milljónir barna sem komast af á minna en 2,15 bandaríkjadölum á dag en á árunum 2013 til 2022 voru það um 383 milljónir barna. Þó árangur hafi náðst og dregið hafi úr fjöldanum þá hægði heimsfaraldur COVID-19 mjög á þeim framförum sem náðst höfðu.  
 
Skýrslan, sem ber heitið Global Trends in Child Monetary Poverty According to International Poverty Lines, kemur út á viðeigandi tímapunkti en í næstu viku hefst Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Þar koma helstu þjóðarleiðtogar heims saman og munu meðal annars ræða þróun og framtíð Heimsmarkmiðanna (e. Sustainable Development Goals). Alþjóðabankinn skilgreinir sárafátækt (e. Extreme poverty) sem einstaklinga sem lifa á innan við 2,15 dölum á dag, eða sem nemur um 360 kr. miðað við núverandi gengi.  

Eitt af takmörkum Heimsmarkmiðanna er að binda enda á fátækt fyrir árið 2030. Fyrirliggjandi upplýsingar benda til þess að það muni ekki náðst án aukinna aðgerða. Líkt og Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF segir, þá hefur alþjóðasamfélaginu tekist að lyfta milljónum barna úr fátækt en samt sem áður hafa áföll líkt og COVID-19, loftslagsbreytingar og efnahagslegar niðursveiflur takmarkað framfarirnar.  

 
„Enn eru milljónir barna sem búa við mikla fátækt. Við getum ekki brugðist þessum börnum heldur þarf að tryggja þeim aðgang að nauðsynlegri þjónustu, þar á meðal menntun, heilbrigðisþjónustu, og félagslega vernd. Að binda enda á sárafátækt er stefnumótandi ákvörðun stjórnvalda,“ segir Russell.  

Skýrslan sýnir einnig fram á að börn sunnan Sahara, eða um 40 prósent þeirra, búi við sárafátækt. Ástæður sem liggja þar að baki eru til dæmis hröð fólksfjölgun, heimsfaraldurinn COVID-19, átök og loftslagshamfarir.  

Líkt og Luis-Felipe Lopez-Calva, framkvæmdastjóri um fátækt og jöfnuð hjá Alþjóðabankanum segir þá er „mikilvægara en nokkru sinni fyrr að öll börn eigi skýra leið út úr fátækt og hafi jafnan aðgang að menntun, heilbrigðisþjónustu, næringu, félagslegri vernd og öryggi. Skýrslan er brýn áminning um að við megum ekki tapa baráttunni gegn fátækt og ójöfnuði og að málefni barna þurfa að vera í forgrunni.“   

Þegar þú ert Heimsforeldri styður þú við mannúðaraðstoð og langtímaverkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í löndum Afríku og yfir 190 öðrum ríkjum um allan heim. SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ HVERNIG ÞÚ GETUR ORÐIÐ HEIMSFORELDRI STRAX Í DAG.  

 

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn