25. apríl 2022

Alþjóðleg vika bólusetninga sett: Ákall um aukna fjárfestingu

Samstarfsaðilar UNICEF heita 1 Bandaríkjadal fyrir hvert „like“, deilingu eða athugasemd sem skrifuð er við færslur á samfélagsmiðla þar sem minnst er á „UNICEF“ með myllumerkinu #longlifeforall til 10. maí.

Þessi ungu börn frá Líberíu sýna stolt merkta fingur sína til marks um að hafa fengið bólusetningu hjá UNICEF við mænusótt.

Góðgerðarsendiherra UNICEF og stórleikarinn Liam Neeson fer í ár fyrir alþjóðlegu ákalli UNICEF þar sem vísindafólki, foreldrum og forráðamönnum, heilbrigðisstarfsfólki og öðrum sem koma að bólusetningum barna eru færðar þakkir fyrir framlag síðustu tvo áratugina. Tilefnið er Alþjóðleg vika bólusetninga sem nú er hafin.

 „Bóluefni eru einhver merkilegasta árangurssaga mannkyns,“ segir Neeson í tilkynningu UNICEF. „Síðustu 75 árin hafa milljarðar barna verið bólusett þökk sé vísindafólki, heilbrigðisstarfsfólki og sjálfboðaliðum. Ef þú hefur einhvern tímann verið bólusett/ur ,eða látið bólusetja barn, þá ert þú hlekkur í gríðarlangri keðju þeirra sem standa saman um bætta velferð mannkyns. Við lifum nú áhyggjulaus um bólusótt, mænusótt ógnar ekki lengur meirihluta heimsbyggðarinnar. Umræðan um bóluefni síðustu ár hefur misst sjónar af öllu því góða sem bólusetningar hafa gert fyrir okkur. Við þurfum að fagna því góða, því það er eitt stærsta afrek mannkynssögunnar.“

Samfélagsmiðlafjáröflun þar sem læk verða að lausn

Fyrir hvert einasta „like“, deilingu eða athugasemd við færslur á samfélagsmiðlum, þar sem minnst er á „UNICEF“ með myllumerkinu #longlifeforall frá og með núna til 10. maí verður 1 Bandaríkjadalur gefinn til UNICEF, upp að 10 milljónum dala, og þeim peningum fjárfest í bólusetningaþjónustu um allan heim. Styrktaraðilar verkefnisins eru Shot@life verkefni United Nations Foundation og Bill og Melinda Gates Foundation.

Þrátt fyrir allt það mikla sem áunnist hefur í bólusetningum barna um allan heim þá misstu 23 milljónir barna af grunnbólusetningum árið 2020. Þetta bil verður aðeins brúað með auknu átaki og fjárfestingu í bólusetningum á heimsvísu. 

UNICEF leiðandi afl í bólusetningu barna í heiminum

UNICEF er leiðandi afl í að útvega og dreifa bóluefnum í yfir 100 löndum um allan heim. Í samastarfi við Gavi, The Vaccine Alliance og samstarfsaðila, útvegar UNICEF 45 prósent af öllu bóluefni í heiminum fyrir börn undir fimm ára aldri. UNICEF vinnur einnig með stjórnvöldum í yfir 130 löndum við að styðja við og styrkja heilbrigðis- og bólusetningaverkefni í hverju þeirra. 

„Undanfarin tvö ár hafa kennt okkur að heilbrigðiskerfi sem skilur sum börn eftir berskjölduð er heilbrigðiskerfi sem skilur öll börn eftir berskjölduð,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. „Besta leiðin fyrir heimsbyggðina að ná sér eftir þennan heimsfaraldur- og búa sig undir heilbrigðisvá framtíðarinnar- er að fjárfesta í heilbrigðiskerfum og bólusetningum og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fyrir öll börn.“ 

Alþjóðleg vika bólusetninga er haldin hátíðleg á hverju ári í apríl undir forystu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem leiðir saman alþjóðlega samstarfsaðila til að minna á mikilvægi bólusetninga til að vernda fólk á öllum aldri gegn alvarlegum sjúkdómum. Þema vikunnar í ár er langlífi fyrir alla eða „#LongLifeForAll“

Framlög Heimsforeldra UNICEF nýtast meðal annars í að bólusetja börn gegn lífshættulegum sjúkdómum. Takk kæru fyrir að hjálpa okkur að bjarga börnum um allan heim, allt árið um kring.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn