13. nóvember 2016

11 mánaða Sadin byrjar aftur að brosa

Sadin Ali þjáist af alvarlegri bráðavannæringu. Hann hlýtur nú meðferð á heilsugæslu UNICEF í flóttamannabúðum í Níger. Sadin Ali er langt frá því að vera eina barnið í þessari stöðu, því hálf milljón barna þjáist af alvarlegri bráðavannæringu í Nígeríu og nágrannaríkjum. UNICEF er á staðnum og vinnur allan sólarhringinn við að hjálpa börnum í neyð.


Sadin Ali þjáist af alvarlegri bráðavannæringu. Hann hlýtur nú meðferð á heilsugæslu UNICEF í flóttamannabúðum í Níger. Mæðginin bjuggu áður í Nígeríu en flúðu þaðan til Níger undan árásum Boko Haram.

Sadin Ali er langt frá því eina barnið í þessari stöðu, því hálf milljón barna þjáist af alvarlegri bráðavannæringu í Nígeríu og nágrannaríkjum. Svæðið er eitt það fátækasta í heimi, en ástandið hefur versnað mikið undanfarið vegna skorts á uppskeru, hækkandi matvælaverðs og árása vígahreyfingarinnar Boko Haram.

UNICEF er á staðnum og vinnur allan sólarhringinn við að hjálpa börnum í neyð. Nú þegar hafa rúmlega hundrað þúsund börn hlotið meðferð við vannæringu en stefnt er á að ná til allra vannærðra barna áður en árinu lýkur. Börnunum eru gefin A vítamín, sýklalyf, vítamínbætt jarðhnetumauk, nauðsynleg lyf og bætiefni. Ef þau eru meðhöndluð nógu snemma getur átta vikna meðferð bjargað lífi þeirra. Til viðbótar við meðferð leggur UNICEF áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir. Í því felst meðal annars að bæta brjóstagjöf og matargjöf ungra barna, ásamt því að gefa börnum vítamín og bætiefni.



Mikilvægt er að tryggja aðgengi að grunnheilsugæslu, því vannæring veikir mótstöðu barna og gerir þau útsettari fyrir ýmsum sjúkdómum sem oft draga þau til dauða – svo sem malaríu, lungnabólgu og niðurgangspestum. Barn sem þjáist af alvarlegri bráðavannæringu er níu sinnum líklegra til að deyja af völdum sjúkdóma en önnur börn sem veikjast af því sama.

UNICEF vinnur að endurbyggingu heilsugæslna sem orðið hafa fyrir skemmdum ásamt því að útvega stór tjöld sem nýtast sem heilsugæslur í flóttamannabúðum. Samtökin hafa þjálfað fjölda heilsuliða og sjálfboðaliða í að koma börnum til hjálpar, tryggt yfir hálfri milljón manna aðgang að hreinu vatni, bólusett fjölda barna og veitt meðferð við malaríu, lungnabólgu og niðurgangspestum. Það sem af er ári hefur UNICEF veitt nærri þremur milljónum manna grunnheilsugæslu.

Hægt er að styðja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Nígeríu og nágrannaríki með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr). Einnig er hægt að styrkja hér og með millifærslu á reikning 701-26-102050, kt 481203-2950.

Fyrir eitt þúsund krónur er sem dæmi hægt að veita barni meðferð við vannæringu í heila viku.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn