Fyrir 5.000 kr. á mánuði má veita 100 börnum vernd gegn berklum.

Styrkja UNICEF

Fyrir 5.000 kr. á mánuði má veita 100 börnum vernd gegn berklum.

Styrkja UNICEF

Neyðarsöfnun

fyrir börn í Miðausturlöndum

Nú fara átökin í Miðausturlöndum harðnandi og áhrif þeirra hafa nú þegar haft áhrif á líf allt of margra barna.  

Um 200 milljónir barna búa í Miðausturlöndum. Næstum 46 milljónir barna búa við lífshættulegar aðstæður og þurfa á mannúðaraðstoð að halda. Um 30 milljónir barna á aldrinum 5–18 ára eru utan skóla. 

Hringdu í 907-3016 og gefðu 3.000 krónur.

Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102020

Kennitala: 481203-2950

Við tökum einnig við styrkjum í gegnum AUR appið í númerið: 123 789 6262 eða @unicef.

UNICEF er til staðar

í Miðausturlöndum

Þegar stríð og hamfarir skella á stendur UNICEF vörð um velferð barna. 

UNICEF er til staðar í Miðausturlöndum. Átök geta haft áhrif á starf okkar en við búum að 80 ára reynslu af því að aðlaga okkur aðstæðum og finnum ávalt bestu leiðirnar til að tryggja að hjálpin berist börnum. 

Eitt af hverjum fimm börnum í heiminum í dag býr við afleiðingar stríðs og átaka. Þetta er staðreynd sem má ekki gleyma og má ekki líta framhjá.  Með stuðningi við UNICEF hjálpar þú okkur að ná hratt til þeirra barna sem þurfa á aðstoð að halda – hvar sem þau eru í heiminum. 

Þinn stuðningur tryggir að við náum til fleiri barna – hraðar.