Ákall fyrir
Afganistan
Hjálpaðu
Hringdu í 907-3010 og gefðu 3.000 krónur.
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög er: 701-26-102030 Kennitala: 481203-2950.
Börn og fjölskyldur þurfa áfram á neyðaraðstoð að halda
Afganistan stendur frammi fyrir einni alvarlegustu mannúðarkreppu heims. Árið 2026 er áætlað að 21,9 milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda, þar af 11,6 milljónir barna. Áratugalöng átök, efnahagslegir erfiðleikar, loftslagstengdar hamfarir og takmarkað aðgengi að grunnþjónustu hafa skilið milljónir fjölskyldna eftir í mikilli neyð.
UNICEF starfar um allt Afganistan og vinnur með stjórnvöldum, samstarfsaðilum og stofnunum Sameinuðu þjóðanna að því að mæta brýnustu þörfum barna og fjölskyldna. Meðal verkefna eru heilbrigðisþjónusta, næringaraðstoð, aðgangur að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, vernd barna, geðheilbrigðis- og sálfélagslegur stuðningur auk menntunar í neyðaraðstæðum.
Staða kvenna og stúlkna í Afganistan er sérstaklega erfið. Takmarkanir á aðgengi stúlkna að framhaldsskólanámi og þátttöku kvenna á vinnumarkaði hafa grafið undan réttindum þeirra og aukið verulega áhættu og viðkvæmni. Afleiðingar þessara takmarkana munu hafa áhrif á heilar kynslóðir barna og ungmenna.
UNICEF hefur starfað í Afganistan frá árinu 1949 og er áfram á vettvangi fyrir börn og fjölskyldur sem búa við óöryggi og skort. Með stuðningi þínum getur UNICEF veitt börnum og fjölskyldum aðgang að hreinu vatni, næringu, heilbrigðisþjónustu, bólusetningum, vernd og menntun, og þannig hjálpað þeim að byggja upp betri framtíð.



