27. ágúst 2026

17 þúsund börn þurfa mannúðaraðstoð eftir skyndiflóð í Nepal

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er á vettvangi að sinna neyðarviðbragði og stuðningi við fjölskyldur.

Í Nuwakot héraði Nepal var eyðileggingin mikil. Mynd/UNICEF

Minnst 17.000 börn urðu fyrir áhrifum af mannskæðum skyndiflóðum sem urðu í héruðum Rasuwa, Nuwakot og Dhading í Nepal í gær. Talið er að að minnsta kosti 332 einstaklingar hafi látist, þar á meðal 14 börn. Hundruð einstaklinga er enn saknað. Óttast er að tala látinna hækki enn nú þegar leit og björgunaraðgerðir halda áfram.

Hringdu í síma 907-3016 til að gefa 3.000 krónur í neyðarsjóð UNICEF.

„Börn víða í Rasuwa og Dhading horfðu á líf sitt bókstaflega skolast í burtu á einu augnabliki. Heimili, skólastofur og heilbrigðisstofnanir skemmdust og allt of margir létu lífið eða misstu ástvini,“ segir Alice Akunga, fulltrúi UNICEF í Nepal. „Þar sem tala látinna heldur áfram að hækka vitum við að þessum hörmungum er hvergi nærri lokið. Börn sem lifðu flóðin af standa nú frammi fyrir aukinni hættu á sjúkdómum, vannæringu og ofbeldi. UNICEF er á vettvangi og eykur nú stuðning sinn, en brýn þörf er á auknu fjármagni svo hægt sé að ná til allra barna sem þurfa á aðstoð að halda.“

Skyndiflóðin hafa sópað heilu samfélögunum burt eða einangrað þau frá umheiminum. Vegir, brýr, vatnsaflsvirkjanir, vatnsveitukerfi og fjarskiptanet hafa orðið fyrir miklum skemmdum. Þetta hefur gert aðgang að mörgum þeirra svæða sem urðu verst úti afar erfiðan og torveldar afhendingu lífsnauðsynlegrar neyðaraðstoðar. Að minnsta kosti fjórar heilbrigðisstofnanir hafa orðið fyrir alvarlegum skemmdum og börn og fjölskyldur eiga því erfiðara með að fá aðgang að heilbrigðisþjónustu þegar hennar er mest þörf.

Auk þess hafa 18 skólar eyðilagst með öllu og 20 skólar til viðbótar orðið fyrir skemmdum. Börn hafa þar með misst örugga staði til að læra, leika sér og vinna úr áföllum. Tugir skóla á hamfarasvæðunum eru nálægt árbökkum og eru enn í hættu. Talið er að um 10.000 börn á skólaaldri þurfi nú á brýnum stuðningi að halda til að geta haldið áfram námi. Þar á meðal er þörf fyrir tímabundin námsrými, nýtt námsefni og sálfélagslegan stuðning fyrir bæði börn og kennara.

UNICEF vinnur náið með stjórnvöldum í Nepal og öðrum mannúðarsamtökum að því að efla lífsbjargandi aðstoð á sviði heilbrigðis, næringar, vatns, hreinlætis og persónulegs hreinlætis (WASH), menntunar, barnaverndar og félagslegrar verndar. Á næstu dögum verður neyðarbirgðum dreift til þeirra samfélaga sem urðu verst úti. Þar á meðal eru lækningatjöld, moskítónet, búnaður fyrir nýbura og næringarfæði fyrir börn með alvarlega bráðavannæringu. Neyðarsett með hreinlætisvörum eru þegar farin að berast þúsundum heimila sem þurfa á aðstoð að halda.

Starfsfólk UNICEF affermir flutningabíl með neyðarpökkum af hreinlætisvörum.

Jafnframt hafa teymi sem veita geðrænan og sálfélagslegan stuðning verið virkjuð. UNICEF vinnur einnig að því að finna, skrá og sameina börn sem saknað er eða hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar. UNICEF vinnur sömuleiðis með stjórnvöldum í Nepal að því að veita fjölskyldum sem hafa orðið fyrir áhrifum af hamförunum neyðarfjárstuðning. Markmiðið er að hjálpa fjölskyldum að mæta brýnustu grunnþörfum sínum og koma í veg fyrir að þær neyðist til að grípa til úrræða sem geta haft skaðlegar afleiðingar.

UNICEF kallar eftir 17,2 milljónum Bandaríkjadala til að halda neyðarstarfinu áfram og styðja við fyrstu stig uppbyggingar þar til hægt verður að meta umfang þarfa að fullu. Án brýns og sveigjanlegs fjárstuðnings verður geta UNICEF til að veita börnum – þar á meðal börnum með fötlun – og konum nauðsynlega þjónustu á sviði heilbrigðis, næringar, vatns, hreinlætis, menntunar, barnaverndar og félagslegrar verndar verulega skert.

Þegar þú styrkir neyðarsjóð UNICEF gerir þú Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna kleift að bregðast tafarlaust við þegar hamfarir verða og neyð skapast hvar sem er í veröldinni. UNICEF er alltaf á vaktinni fyrir réttindi barna og stuðningur þinn hjálpar okkur að standa þá vakt.

Hringdu í síma 907-3016 til að gefa 3.000 krónur í neyðarsjóð UNICEF.

Fleiri
fréttir

27. ágúst 2026

17 þúsund börn þurfa mannúðaraðstoð eftir skyndiflóð í Nepal
Lesa meira

26. ágúst 2026

Blóðugar vikur fyrir börn í Úkraínu
Lesa meira

21. ágúst 2026

Börn í Sómalíu bera þungann af niðurskurði þjóða til lífsnauðsynlegrar aðstoðar
Lesa meira
Fara í fréttasafn