05. maí 2020

19 milljónir barna á vergangi í heimalandi sínu í fyrra vegna átaka – aldrei verið fleiri

UNICEF áætlar að 19 milljónir barna hafi verið á vergangi innan heimalandsins á síðasta ári eftir að hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna átaka og ofbeldis

5. maí 2020 UNICEF áætlar að 19 milljónir barna hafi verið á vergangi innan heimalandsins á síðasta ári eftir að hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna átaka og ofbeldis. Þessi börn hafa aldrei verið fleiri samkvæmt nýrri skýrslu sem birt var í dag.

Skýrslan, sem ber yfirskriftina Lost at Home, skoðar hætturnar og áskoranirnar sem börn á vergangi standa frammi fyrir og þær nauðsynlegu aðgerðir sem ráðast þarf í til að vernda þau. Nú, í heimsfaldri COVID-19, eru þessi börn berskjölduð fyrir afleiðingum hans, beinum og óbeinum.

„Milljónir barna um allan heim eru nú þegar án viðeigandi verndar og umönnunar,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF. „Þegar ný krísa kemur upp, eins og COVID-19 heimsfaraldurinn, er þessi hópur sérstaklega viðkvæmur. Það er nauðsynlegt að stjórnvöld og mannúðarsamtök vinni saman að því að tryggja öryggi þeirra, heilsu og menntun.“

Í skýrslunni kemur fram að börn á flótta innan heimalands síns skorti grunnþjónustu og eigi frekar á hættu að verða fyrir ofbeldi, misnotkun eða mansali. Þá aukast líkurnar á að þau verði hneppt í barnaþrælkun, barnahjónaband eða verði viðskila við fjölskyldur sínar verulega sem augljóslega stofni velferð þeirra, heilsu og öryggi í hættu. Aðstæður þessara barna skána ekkert við heimsfaraldur COVID-19. Börn á vergangi búa oft í yfirfullum búðum og nýbyggðum þar sem verulega skortir á hreinlæti og hreinlætisaðstöðu og smitleiðir mýmargar.

Samkvæmt skýrslu UNICEF þurftu 12 milljónir barna að flýja heimili sín innan heimalandsins í fyrra. 3,8 milljónir vegna átaka og ofbeldis. En 8,2 milljónir vegna náttúruhamfara á borð við flóða og fellibylja.

Skýrsluna má lesa í heild sinni með því að smella hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn