25. september 2019

Efnum loforðin: Stöndum með börnunum og tökum slaginn

„Nú þegar við fögnum 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna skulum við ekki einungis skuldbinda okkur til að hlusta á börn og ungt fólk. Heldur styðja þau, taka slaginn með þeim og fylgja þeirra fordæmi,“ sagði Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í athöfn tileinkaðri 30 ára afmæli Barnasáttmálans í New York í dag.

25. september 2019 „Nú þegar við fögnum 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna skulum við ekki einungis skuldbinda okkur til að hlusta á börn og ungt fólk. Heldur styðja þau, taka slaginn með þeim og fylgja þeirra fordæmi,“ sagði Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í athöfn tileinkaðri 30 ára afmæli Barnasáttmálans í New York í dag.

Í áhrifamikilli ræðu sinni rifjaði Fore upp að fyrir þremur áratugum hafi heimurinn verið að breytast mikið. Berlínarmúrinn var að falla, aðskilnaðarstefnan á undanhaldi og veraldarvefurinn að verða til. Það var í þessu andrúmslofti sem þjóðarleiðtogar hafi komið saman og gefið öllum börnum heimsins loforð. Að þau ættu rétt á heilbrigðisþjónustu, menntun og vernd. Rétt til að láta rödd sína heyrast. Rétt á framtíð.

Fore talaði um að mikill árangur hafi náðst en minnti einnig á, líkt og á dögunum, hvaða áskoranir börn standi frammi fyrir í dag árið 2019. Barnæskan væri að breytast og það þyrftum við líka að gera. En börn og ungmenni væru að gera frábæra hluti á borð við loftslagsverkföll, mótmæli, kröfugöngur og baráttu fyrir friði sem hinum fullorðnum bæri ekki aðeins að taka eftir heldur styðja þau í.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn