29. júní 2026

680.000 börn þurfa mannúðaraðstoð í Venesúela

UNICEF er á vettvangi og flytur tugi tonna hjálpargagna til hamfarasvæða.

Eyðilegging og mannfall var mikið í jarðskjálftunum skelfilegu. Mynd: UNICEF/UN0876594/Parra/AFP

UNICEF áætlar að 680.000 börn þurfi á mannúðaraðstoð eftir jarðskjálftana stóru í Venesúela í síðustu viku. Fyrsta sending UNICEF með rúmlega 20 tonnum af nauðsynlegum neyðarbirgðum bárust strax um helgina og fleiri á leiðinni. Hreint vatn, sjúkragögn, tjöld og hreinlætisvörur sem sárlega vantar á hamfarasvæðiðþ UNICEF hefur brugðist skjótt við til að skala upp allt sitt viðbragð og aðgerðir í þessum neyðaraðstæðum, viðbragð sem miðar að því að ná til 650.000 manns með lífsnauðsynleg neyðargögn.

Þessar umfangsmiklu aðgerðir þarf að fjármagna. Þú getur styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Venesúela með því að hringja í 907-3016 (3.000 kr.) eða fyrir upphæð að eigin vali á unicef.is.

UNICEF áætlar að 1,8 milljónir manna, þar á meðal 680.000 börn, þurfi á mannúðaraðstoð að halda í kjölfar jarðskjálftanna sem urðu í Venesúela þann 24. júní.

Jarðskjálftarnir öflugu, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með innan við mínútu millibili þann 24. júní. Um er að ræða mesta jarðskjálftaviðburð sem orðið hefur í Venesúela í rúma öld. Bráðabirgðagreining á gervihnattamyndum sýnir að nær þriðjungur bygginga á því svæði sem verst varð úti, Catia La Mar í La Guaira-ríki, hefur orðið fyrir skemmdum.

„Þremur dögum eftir að viðbragðsaðgerðir hófust er umfang neyðarinnar að verða sífellt skýrara,“ segir Manuel Rodriguez Pumarol, fulltrúi UNICEF í Venesúela. „Sjúkrahús starfa langt umfram afkastagetu, þúsundir barna hafa ekki tryggan aðgang að hreinu og öruggu vatni og fjölmargir skólar hafa orðið fyrir skemmdum. UNICEF vinnur náið með stjórnvöldum í Venesúela og samstarfsaðilum að því að auka stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Áframhaldandi fjármögnun verður lykilatriði til að halda þessum aðgerðum gangandi á komandi vikum.“

Sjúkrahús í La Guaira, Caracas, Carabobo, Aragua og Falcón hafa orðið fyrir miklum skemmdum. Það hefur valdið því að sum þeirra starfa nú við þolmörk og hefur raskað heilbrigðisþjónustu fyrir börn og barnshafandi konur. Á höfuðborgarsvæðinu einu saman benda bráðabirgðaupplýsingar til þess að 432 skólar, eða meira en þriðjungur allra skóla þar, hafi orðið fyrir skemmdum og raskað þar með skólagöngu barna. Gert er ráð fyrir að þessi tala hækki þegar mat á tjóni í öðrum ríkjum landsins liggur fyrir. Óskemmdir skólar eru jafnframt nýttir sem tímabundin skjól fyrir fjölskyldur sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín.

UNICEF hefur, í samstarfi við stjórnvöld í Venesúela, stofnanir Sameinuðu þjóðanna og aðra mannúðaraðila, stóraukið neyðarviðbragð sitt og aðgerðir. Viðbótarstarfsfólk hefur verið sent á vettvang og hjálpargögn flutt til landsins með það að markmiði að ná til um 650.000 einstaklinga, þar af 234.000 barna, með aðstoð á sviði heilbrigðismála, næringar, vatns- og hreinlætismála, barnaverndar og menntunar.

Fyrsta flug UNICEF með um 20 tonn af sjúkragögnum, vatns- og hreinlætisbúnaði og tjöldum kom til Valencia þann 27. júní frá svæðisbirgðastöð UNICEF í Panama. Gert er ráð fyrir annarri sendingu á næstu dögum frá alþjóðlegri birgðamiðstöð UNICEF í Kaupmannahöfn. Samanlagt er áætlað að þessar tvær sendingar muni nýtast meira en 100.000 manns.

UNICEF áætlar að 52 milljónir Bandaríkjadala þurfi til að bregðast við neyðarástandinu af völdum jarðskjálftanna. Sú fjárhæð er hluti af heildarákalli stofnunarinnar vegna mannúðaraðgerða fyrir börn í Venesúela árið 2026, sem nemur alls 137,6 milljónum Bandaríkjadala. Stofnunin hvetur nú alþjóðlega styrktaraðila til að leggja fram frekara og sveigjanlegt fjármagn svo unnt verði að viðhalda og efla viðbragðsaðgerðirnar.
Þú getur lagt þitt af mörkum til neyðarsöfnunar UNICEF á Íslandi fyrir Venesúela með því að hringja í 907-3016 (3.000 kr.) eða fyrir upphæð að eigin vali á unicef.is.

Fleiri
fréttir

29. júní 2026

680.000 börn þurfa mannúðaraðstoð í Venesúela
Lesa meira

26. júní 2026

Þúsundir barna í hættu eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela
Lesa meira

23. júní 2026

Nærri þrjár milljónir barna í hættu vegna ebólufaraldurs í austurhluta Kongó
Lesa meira
Fara í fréttasafn