14. október 2019 UNICEF áætlar að 70 þúsund börn séu nú á vergangi síðan innrás Tyrkja í norðurhluta Sýrlands hófst í síðustu viku. Þjóðarleiðtogar hafa keppst við að fordæma hernaðaraðgerðir Tyrkja sem beinast gegn Kúrdum fyrst og fremst.
„UNICEF hefur staðfest að fjögur börn hafi látið lífið í árásum og níu til viðbótar slasast í norðausturhluta Sýrlands. Sjö börn hafa samkvæmt fregnum látist í Tyrklandi,“ segir í yfirlýsingu frá framkvæmdastjóra UNICEF, Henriettu Fore.
Árásir hafa verið gerðar á þrjár heilbrigðisstofnanir, sjúkrabíl og einn skóla síðan árásir hófust og líkt og greint var frá hér fyrir helgi var A-louk-vatnsdælustöðin, sem sér 400 þúsund manns í Al-Hasakeh fyrir hreinu vatni, eyðilögð. Fore segir að UNICEF hafi þungar áhyggjur af því að minnsta kosti 170 þúsund börn muni þurfa á neyðaraðstoð að halda vegna átakanna ef fram heldur sem horfir.
Þrátt fyrir yfirstandandi skálmöld, ofbeldis- og óhæfuverk sem fregnir berast nú af daglega er UNICEF á svæðinu að vinna með samstarfsaðilum við að veita nauðsynlega aðstoð.
Þetta felur í sér:
- Neyðaraðstoð fyrir fjölskyldur sem koma í neyðarskýli sem komið hefur verið upp.
- Útvega 95 þúsund lítra af vatni og 12 vatnstanka til að takast á við vatnsskort í neyðarbúðum í Al-Hasakeh þar sem vatnsdælustöðin skemmdist.
- Skipuleggja viðgerðarvinnu á A-louk-vatnsdælustöðinni.
- Veita heilbrigðisþjónustu, skima fyrir næringarvandkvæðum barna og kvenna.
- Gera viðeigandi ráðstafanir fyrir þrettán börn sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar.
Þessu til viðbótar heldur UNICEF áfram að flytja hreint vatn, heilbrigðis- og næringarþjónustu í Al-Hol búðunum þar sem nærri 64 þúsund börn og konur hafast við. UNICEF ítrekar fyrri ákall sitt um að allir aðilar geri allt sem í þeirra valdi stendur til að verja börnin, saklaus fórnarlömb þessara glórulausu átaka.
„Stríðandi fylkingar í norðausturhluta Sýrlands sem og annars staðar verða að vernda innviði, helstu þætti samfélaga, sem börnum eru nauðsynlegir og ekki nota þá í hernaðarlegum tilgangi,“ segir Fore.
Þú getur lagt starfi UNICEF í norðausturhluta Sýrlands lið. Stuðningur þinn skiptir máli og hefur áhrif.
Sendu sms-ið STOPP í númerið 1900 (1.900 kr.)
Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950
Nánari upplýsingar um hvernig þú getur hjálpað börnum í Sýrlandi hér.

