22. maí 2020 Heimsfaraldur COVID-19 er að setja verulegt strik í reikninginn varðandi fjöldabólusetningar í forvarnarskyni hjá milljónum barna um allan heim, í ríkum jafnt sem fátækum ríkjum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO), UNICEF og Gavi, bólusetningarbandalagið sem stofnað var af Bill og Melindu Gates, kalla eftir átaki í þessum efnum svo bjarga megi lífum. Ákallið kemur í aðdraganda Alþjóðlegu bólusetningarráðstefnunnar (e. Global Vaccine Summit) sem hefst 4. júní næstkomandi þar sem þjóðarleiðtogar munu ráða ráðum sínum í þessum efnum.
Samkvæmt gögnum sem WHO, UNICEF, Gavi og Sabin Vaccine Institute tóku saman hafa hefðbundnar bólusetningar barna dregist verulega saman í að minnsta kosti 68 ríkjum vegna ástandsins og áætlað að það muni hafa áhrif á 80 milljónir barna á fyrsta ári.
„Rask á bólusetningarverkefnum vegna COVID-19 heimsfaraldursins ógnar framförum og vinnu síðustu áratuga við að vinna á sjúkdómum sem hægt er að koma í veg fyrir,“ segir Tedros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri WHO, í sameiginlegri tilkynningu stofnananna. „Þann 4. júní næstkomandi munu styrktaraðilar veita Gavi– bólusetningarbandalaginu stuðning sinn til að viðhalda og bjarga lífi fólk í viðkvæmustu þjóðunum. Ég hvet styrktaraðila til að fjármagna bandalagið. Þessar þjóðir, þessi börn sérstaklega, þurfa bóluefni og þau þurfa á Gavi að halda,“ segir Ghebreyesus.
„Aldrei í sögunni hafa fleiri börn í fleiri löndum verið varin fyrir sjúkdómum en nú,“ segir Seth Berkley, forstjóri Gavi. „En vegna COVID-19 er þessi árangur í hættu. Við horfum fram á hættuna að mislingar og mænusótt brjótist út að nýju. Með því að viðhalda bólusetningaráformum munum við ekki aðeins fyrirbyggja slíkan faraldur heldur tryggja þá innviði sem við munum þurfa á að halda þegar bóluefni við COVID-19 verður tilbúið.“
„Við megum ekki láta baráttu okkar við einn sjúkdóm koma niður á langtímabaráttu okkar við aðra,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF. „Aðstæður hafa kallað á hlé á aðgerðum en við verðum að hefja þær að nýju eins fljótt og auðið er ef við viljum ekki að annar faraldur taki við af þessum og koll af kolli,“ segir Fore.
Í næstu viku mun WHO gefa út ráðleggingar um hvernig koma megi á nauðsynlegri þjónustu á ný meðan heimsfaraldurinn geisar, þar á meðal öryggisráðleggingar um hvernig megi taka upp bólusetningar á nýjan leik.

