14. maí 2018

Á fimmtu milljón safnaðist í skákmaraþoni helgarinnar

Dagur borgarstjóri tefldi fyrstu skákina, en auk hans mættu börn úr Rimaskóla, Katrín forsætisráðherra, skákstjörnur úr Laufásborg, Guðni forseti auk fjölda annarra gesta á öllum aldri. Þegar yfir lauk á laugardagskvöldið höfðu Hrafn og Róbert Lagerman teflt ríflega 250 skákir í Pakkhúsinu.

Vel heppnuðu skákmaraþoni Hrafns Jökulssonar og Hróksins til styrktar börnum í Jemen lauk um helgina. Dagur borgarstjóri tefldi fyrstu skákina, en auk hans mættu börn úr Rimaskóla, Katrín forsætisráðherra, skákstjörnur úr Laufásborg, Guðni forseti auk fjölda annarra gesta á öllum aldri. Þegar yfir lauk á laugardagskvöldið höfðu Hrafn og Róbert Lagerman teflt ríflega 250 skákir í Pakkhúsinu.

Maraþonið var haldið í minningu Jóhönnu Kristjánsdóttur, sem var mikil baráttukona fyrir bættum heimi og stofnandi Fatímusjóðsins. Jóhanna og Fatímusjóðurinn hafa verið dyggir samstarfsaðilar UNICEF í fjölda ára og meðal annars safnað fyrir stíðshrjáð börn í Sýrlandi og Jemen.

Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar lögðu söfnuninni lið. Á fimmtu milljón króna safnaðist um helgina og enn eru framlög að berast. Söfnunarféið rennur beint í neyðaraðgerðir UNICEF í Jemen þar sem milljónir barna búa við skelfilega neyð.

Enn er hægt að leggja söfnuninni lið. Hægt er að gera það með því að senda SMS-ið JEMEN í nr 1900 (1.900 krónur) eða leggja inn á reikning Fatimusjóðsins: 512-04-250461, kt 680808-0580.

Ljósmyndir: Inga María Brynjarsdóttir

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn