02. september 2015

Að tala við börn um stríð

Hvert foreldri þarf að meta út frá sínu barni hvort tilefni sé til að skýla því frá umfjöllun fjölmiðla.

Birt 2. september 2015
Umræða og umfjöllun um hryllilegan aðbúnað og upplifun sýrlensks flóttafólks síðustu vikur og daga hafa ekki skilið nokkurn mann eftir ósnortinn. Heimsbyggðin er að vakna fyrir þeim hryllingi sem Sýrlendingar hafa búið við síðustu fjögur ár. Ljósmyndir í fjölmiðlum miðla raunveruleika sem milljónir sýrlenskra barna búa við. Þau eru hornreka, eiga sér ekki öruggan samastað, ganga ekki í skóla, hafa ekki aðgang að heilsugæslu og eru í stöðugri hættu. Einhver hryllilegasta birtingarmynd þessa veruleika eru myndir af drukknuðum börnum sem mara í hálfu kafi undan ströndum Miðjarðarhafsins.

Í nútíma samfélagi er aðgengi að fjölmiðlum meira en nokkru sinni, upplýsingar, ljósmyndir og annað myndefni eru alls staðar. Börn og ungmenni eru vel með á nótunum, þau fylgjast með fjölmiðlum og hlusta með öðru eyranu þegar fréttatíminn er í sjónvarpinu. Fréttir af stríðsátökum eru hluti af umhverfi barna og ungmenna á Íslandi, í meira mæli núna en nokkurn tímann fyrr. Börn hafa takmarkaðar forsendur til að skilja og vinna úr upplýsingum um stríðsrekstur og ofbeldi. Umfjöllun fjölmiðla og hjálparsamtaka getur því verið til þess fallin að valda þeim hugarangri, ótta, kvíða og vanlíðan.

Eftir að hafa unnið fyrir UNICEF í nokkur ár og lesið mér til um átökin í Sýrlandi, taldi ég mig vel upplýsta og tilbúna fyrir umræður um þetta hrikalega stríð. Allt þar til sjö ára sonur minn hóf orrahríð áleitinna spurninga um forsíður dagblaðanna einn daginn og í framhaldinu fréttatíma kvöldsins. Hann var að opna augun fyrir ljótleika heimsins í fyrsta sinn, fyrr en við foreldrarnir hefðum óskað. Að hluta til fylltist ég stolti yfir þeirri samkennd sem bjó í brjósti hans. Löngunin til að skilja örlög jafnaldra sinna var mikil. Fyrir honum er þetta svart/hvítt, börn ættu alltaf að fá að vera hamingjusöm. Hann fór jafnvel að efast um það sem við foreldrarnir höfðum sagt honum; „mamma þú sagðir að í Barnasáttmálanum stæði að börn ættu aldrei að búa í stríði?“ – „mamma af hverju er þessi maður og þetta barn grátandi í þessum báti, er hann að sökkva?“ – „mamma af hverju fer UNICEF ekki bara með flugvél og sækir þetta fólk?“ Ég fylltist kvíða, hvernig útskýrir foreldri óréttlæti heimsins og grimmileg örlög barnanna frá Sýrlandi fyrir sjö ára barni?

Mig grunar að ég sé ekki eina foreldrið í þessari stöðu, að vilja kynna barnið sitt fyrir heiminum en finnast það erfitt á tímum sem þessum. Þó að börn séu ótrúlega klár, þá eru þau ekki alltaf undirbúin fyrir það sem heimurinn færir þeim – ekki við foreldrarnir heldur. Hvað er til ráða, hvernig ættu foreldrar að bregðast við svona spurningum? Ég leitaði í eigin viskubrunn ásamt því að leita í ráðleggingar sem UNICEF hefur gefið út á alþjóðavísu og hér koma nokkrar hugleiðingar og ráð fyrir okkur foreldra.

Hvert foreldri þarf að meta út frá sínu barni hvort tilefni sé til að skýla því frá umfjöllun fjölmiðla. Almenna reglan er að foreldrar ættu að vera mjög vel á varðbergi hvað varðar að halda myndefni frá ungum börnum sem getur valdið þeim vanlíðan eða kvíða. Engin ástæða er til að ung börn viti eða skilji smáatriði varðandi atburði frétta. Þau hafa mjög takmarkaða færni til að skilja ofbeldisfulla hegðun og geta fundið fyrir mikilli hræðslu við að sjá slíkt myndefni eða heyra lýsingar í fréttum. Með það fyrir augum er til að mynda mælt með að foreldrar bíði með að horfa á kvöldfréttirnar þar til börnin eru farin að sofa, þegar mikið er fjallað um stríð og átök í samfélaginu.

Erfiðara getur verið að skýla eldri börnum frá umfjöllun fjölmiðla og því fullt tilefni fyrir foreldra að grípa þau tækifæri sem gefast til að ræða við börnin sín. Þar gildir að ræða við þau opinskátt og reyna að útskýra eftir fremsta megni þá atburði sem þau sjá í fjölmiðlum og geta valdið þeim vanlíðan og kvíða. Þó við gerum okkar besta til að halda umfjöllun um Sýrlandsstríðið frá börnunum okkar, eru allar líkur á að þau sjái eitthvað um það á netinu, heima hjá vini eða í skólanum. Það er því mikilvægt að undirbúa þau og ræða þessa hluti við þau.

Þegar börnin okkar taka eftir fréttum um stríð og átök og sýna þeim áhuga er mikilvægt að gefa þeim góðan tíma og leggja sig fram við að svara þeim spurningum sem þau kunna að hafa. Enginn ætlast til þess að foreldrar geti útskýrt átökin í Sýrlandi í minnstu smáatriðum, allra síst börnin okkar. Þau þurfa heldur ekki á því að halda að fá svo ítarlega útskýringu. Stríð eru í sjálfu sér óskiljanleg, sérstaklega fyrir börn. Það er í lagi að viðurkenna fyrir þeim eigin takmarkanir og segja þeim að þú sem fullorðinn einstaklingur eigir einnig erfitt með að skilja ástæður stríðs og ofbeldis.

Leyfðu börnunum þínum að stýra samræðunum. Hvað það er sem veldur þeim áhyggjum gæti komið þér á óvart. Ef börnin fá að ræða áhyggjur sínar á eigin forsendum tryggirðu að þau fái tækifæri til að ræða áhyggjuefni sín og samræðurnar ganga ekki út frá ályktunum þínum. Það skiptir einnig máli að halda umræðunum opnum. Börn þurfa að finna að þau geti leitað til þín aftur og aftur og spurt spurninga um sama málefnið. Þau afla sér líka sjálf upplýsinga sem þau melta og verða í framhaldinu að finnast þau geta borið erindið upp aftur ef nýjar vangaveltur vakna. Ef áhyggjur barnsins taka hins vegar á sig þráhyggjukenndan blæ og það virðist stöðugt vilja ræða málið, er betra að reyna að afmarka þann tíma sem fer í umræðuna og hjálpa barninu að beina huganum að öðru.

Sjáðu til þess að börnin þín skilji að það sé engin ástæða til að óttast að stríð eða átök brjótist út á Íslandi. Gerðu þó ekki lítið úr áhyggjum þeirra af fólkinu sem þau sjá í fjölmiðlum, þau eru að læra að sýna samkennd og samúð og það eru góðir eiginleikar. Það er mikilvægt fyrir börn að sjá að okkur er annt um annað fólk, um réttlæti í heiminum og að koma fólki sem á um sárt að binda til aðstoðar.

Bentu þeim á að það sé til margt fólk í heiminum sem sé að hjálpa, nú um stundir séu óvenju margir sem eigi um sárt að binda en að alþjóðasamtök líkt og UNICEF vinni hörðum höndum að því að hjálpa fólkinu sem barnið sér í fjölmiðlum. Segðu barninu þínu frá því að þið fjölskyldan séuð heimsforeldrar og að þið styrkið UNICEF í hverjum mánuði. Útskýrðu fyrir þeim að samtökin berjist fyrir réttindum barna út um allan heim og vinni nú baki brotnu við að aðstoða flóttafólk frá Sýrlandi. Segðu þeim frá því að UNICEF reyni að ná til allra þessara barna með það að marki að tryggja þeim heilbrigðisþjónustu, hjálpa þeim aftur í skóla, útvega þeim hreint vatn og setja upp barnvæn svæði þar sem börn sem eru á flótta geta leikið sér og gleymt því um stund hvað gengur á í kringum þau. Með því að vera heimsforeldrar eru þau líka að hjálpa og leggja sitt af mörkum!

Finnið vettvang til að hjálpa!

Börn vilja oft gera meira en bara tala um upplifun sína af stríði og átökum, þau vilja gjarnan sjálf fá að leggja eitthvað af mörkum. Útskýrðu fyrir börnunum þínum hvernig þau geti hjálpað, hvort sem það er með því að vekja aðra til vitundar eða með því að safna framlögum til hjálparstarfs, s.s. með því að halda tombólu. Margt smátt gerir eitt stórt!

Vonandi nýtast þessar ráðleggingar foreldrum og öðrum vel og reynast gagnlegar þegar kemur að því að svara erfiðum spurningum sem börn eiga til að spyrja.

Með kærri kveðju
Hjördís Eva Þórðardóttir
Réttindafræðslufulltrúi UNICEF á Íslandi
BA í sálfræði, MA nemi í uppeldisfræði

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn