Aðgengi barna og ungmenna að geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi fær falleinkunn í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar. Í úttektinni kemur meðal annars fram að langur biðtími eftir nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu sé óviðunandi og gangi gegn lögbundnum skyldum ríkisins og stefni velferð barna hér á landi í tvísýnu.
UNICEF á Íslandi fagnar þessari úttekt og hvetur stjórnvöld eindregið til að bæta úr stöðunni með heildstæðum aðgerðum til að stytta biðlista barna eftir geðheilbrigðisþjónustu. Við, líkt og Ríkisendurskoðun hvetjum stjórnvöld einnig til að skilgreina og setja sér markmið um viðunandi biðtíma barna eftir geðheilbrigðisþjónustu.
Börn eiga ekki heima á biðlistum.
Á heimasíðu Ríkisendurskoðunar kemur fram að eftirspurn eftir þjónustu stofnana sem sinna geðheilbrigðismálum barna og unglinga hefur stóraukist undanfarin ár. Þá segir einnig að á sama tíma hafi biðtími eftir þjónustunni lengst. Síðla árs 2015 biðu rúmlega 390 börn eftir þjónustu Þroska- og hegðunarstöðvar sem starfar á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en þjónar öllu landinu, 120 voru á biðlista göngudeildar Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) og 208 biðu eftir þjónustu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.

